„Nú er komið að mér“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 29. ágúst 2026 17:41 Hákon konungur klökknaði þegar hann minntist föður síns. AP Hákon VIII Noregskonungur ávarpaði norsku þjóðina í fyrsta sinn sem konung í kvöld, rúmum sólarhring eftir að faðir hans, Haraldur V, lést 89 ára að aldri.
Í ávarpinu, sem sýnt var í norska ríkisútvarpinu NRK, minntist Hákon föður síns og talaði um verkefnið sem nú bíður hans sem konungs. Ávarpið var tekið upp fyrirfram og stóð í tæpar níu mínútur. Brúðkaupsafmæli Haraldar og Sonju í dag „Elsku pabbi. Takk fyrir að vera svona góður pabbi,“ sagði Hákon í upphafi ávarpsins og lýsti Haraldi sem hlýjum og traustum föður, skemmtilegum afa og ástríkum eiginmanni. Hann varð sýnilega klökkur þegar hann minntist föður síns og sagði meðal annars að hann myndi sakna hláturs hans. Þá beindi hann orðum sínum að Sonju drottningu, móður sinni, en í dag hefðu hún og Haraldur átt 58 ára brúðkaupsafmæli. „Til hamingju með brúðkaupsafmælið, elsku mamma,“ sagði konungurinn. Mikið verkefni framundan Hákon beindi máli sínu þá að arfleiðinni og þess sem tekur við. Hann rifjaði upp að Haraldur hefði tekið við af Ólafi V, sem sjálfur tók við af Hákoni VII. Stórt verkefni bíði hans. „Nú er komið að mér,“ sagði Hákon. Hann sagði föður sinn hafa lagt áherslu á að hver og einn yrði að finna sína eigin leið og sinn eigin hátt. Sjálfur sagðist Hákon þakklátur fyrir stuðning Mette-Marit drottningar og barna þeirra. Þúsundir minnst Haralds Haraldur lést á Ríkisspítalanum í Ósló klukkan 6.35 í gærmorgun. Við andlát hans tók sonur hans og erfingi sjálfkrafa við krúnunni. Hákon hefur ákveðið að halda einkunnarorðum föður síns, afa og langafa: „Alt for Norge“, eða Noregi allt. Hann mun sverja stjórnarskránni eið á norska Stórþinginu á þriðjudag. Ávarpinu lauk hann með því að biðja um stuðning norsku þjóðarinnar við verkefnið fram undan: „Með hjálp Guðs og stuðningi þjóðarinnar hlakka ég til þess mikla verkefnis sem bíður mín.“ „Guð varðveiti landið okkar.“
Noregur Hákon VIII Noregskonungur Kóngafólk Haraldur V Noregskonungur Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira