Fótbolti

Ari var á skotskónum og tryggði Elfsborg í Evrópu­sæti

Andri Broddason skrifar
Ari Sigurpálsson var ekki búinn að vera lengi inn á þegar hann skoraði annað mark Elfsborg.
Ari Sigurpálsson var ekki búinn að vera lengi inn á þegar hann skoraði annað mark Elfsborg. IF Elfsborg

Ari Sigurpálsson var á skotskónum þegar Elfsborg vann Degerfors 2-0 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Júlíus Magnússon var einnig í byrjunarliði Elfsborg.

Elfsborg náði forystu leiksins strax á þrettándu mínútu þegar Niklas Hult gaf boltann á Leo Östman sem var í dauðafæri og kláraði það vel.

Elfsborg var sterkari aðilinn í leiknum og stjórnaði honum allan tímann. Liðið átti í erfiðleikum með að skora annað mark og það getur verið virkilega hættulegt fyrir lið að vera bara með eins marks forystu.

Á 82. mínútu kom Ari Sigurpálsson inn á fyrir Elfsborg og bætti hann í sóknarleik liðsins. Á 88. mínútu fór Elfsborg í skyndisókn og fékk Ari boltann fyrir utan teig og lét vaða á markið. Matvei Igonen hafði engin svör við skoti Ara og tryggði hann Elfsborg 2-0 sigur.

Elfsborg náði með sigrinum að komast upp fyrir Häcken í sænsku úrvalsdeildinni. Það er að sama skapi síðasta Evrópusæti sænsku úrvalsdeildarinnar og því mikilvægt fyrir félagið að halda sér þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×