Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar 27. ágúst 2026 14:50 Í umræðu um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið hefur eitt og annað borið á góma. Að mörgu leyti má fagna þeirri umræðu sem við, sem samfélag, höfum átt. Það jákvæða við þessa miklu umræðu er að við höfum fengið tækifæri til að skoða samfélagið á breiðum grunni, hvar við stöndum og hvert við viljum, og ættum, að stefna. Samkeppni við önnur ríki Samanburður við önnur ríki er alltaf snúin spurning. Hún krefst þess að við skilgreinum fyrst hvað við viljum meta, hvað það er í huga okkar sem er mikilvægast að samfélag búi yfir. Ein manneskja kann að vilja bara horfa á menntakerfið, önnur heilbrigðiskerfið og sú þriðja kann að líta helst til möguleikans á að eiga, reka og starfrækja fyrirtæki. Þrátt fyrir þetta og þótt það kunni að hljóma kuldalega, þá er það engu að síður staðreynd að fjöldi fólks veltir því fyrir sér, á degi hverjum, hvar það býr sér til framtíð. Það er líka staðreynd að þau sem ráðast í atvinnurekstur velja sér hvar þau gera það. Ísland er í samkeppni við önnur ríki um þetta fólk og fjárfestingar þess. Umhverfi fyrirtækja á Íslandi Í lok júní birtu tveir sérfræðingar Viðskiptaráðs grein í Viðskiptablaðinu, „Á gulu spjaldi“. Tilefni greinarinnar var samkeppnishæfnikönnun IMD-háskólans í Sviss. Á þessum lista féll Ísland um sjö sæti milli ára, og er númer 22 af 70 ríkjum sem til skoðunar voru. Svo það sé sagt, þá voru fjöldamörg atriði sem við kjörnir fulltrúar eigum að taka alvarlega, alveg óháð öllum þjóðaratkvæðagreiðslum. Mikilvægt er að búa til launaumhverfi sem tekur mið af framleiðni. Ekki síður er mikilvægt að halda áfram á þeirri braut að gera opinbera stjórnsýslu skilvirkari og fækka hindrunum. Það sem vakti helst athygli mína er hvað skortur á erlendri fjárfestingu dregur Ísland mikið niður, en þegar sá þáttur er mældur lendir Ísland í 58. sæti. Þar leikur íslenska krónan ákveðna rullu enda eru erlendir fjárfestar ólíklegri til að vilja stíga inn í lítið og óþekkt gjaldmiðlaumhverfi og taka þar með áhættu til viðbótar við þá áhættu sem felst í fjárfestingunni sjálfri. Einnig vekur það athygli að þróun gengis er meðal atriða sem metin er til minni samkeppnishæfni Íslands, miðað við fyrri ár. Þar er ekki verið að horfa til hvort að gengið sé hærra eða lægra, eingöngu til þess að það er óstöðugt. Samkeppnishæfni gjaldmiðils Gjaldmiðlar eru í samkeppni við hvorn annan. Ef meiri verslun verður með gjaldmiðil, eykst gildi hans gagnvart öðrum gjaldmiðlum, og öfugt ef verslun minnkar. Íslenska krónan er lítill gjaldmiðill á heimsvísu og staða hennar gagnvart stærri myntum getur því sveiflast mikið á milli ára. Það sést vel á gengisstöðugleika krónunnar í úttekt IMD-háskólans: í fyrra mældist hún stöðugri en evran og Ísland var þá ofar öllum evruríkjum í þeim samanburði, en í ár er staðan þveröfug. Punkturinn er ekki að krónan sé alltaf lakari en evran, heldur að staða okkar í þessum samanburði geti sveiflast svona mikið á einu ári, af þeim sökum að við höldum úti sjálfstæðum og litlum gjaldmiðli. Sú óvissa er einfaldlega ekki til staðar innan evrusvæðisins sjálfs, enda nota aðildarríkin þar einn og sama gjaldmiðilinn. Fyrir útflutningsgreinar og fyrirtæki í alþjóðlegum viðskiptum þýðir þessi óvissa að þau þurfa að verja sig sérstaklega fyrir gengissveiflum og geta síður treyst verðlagningu sinni en samkeppnisaðilar á stærri myntsvæðum. Staðreyndin er sú að krónan dregur úr samkeppnishæfni Íslands. Þess utan myndi aðild að ESB fela í sér að Ísland gengi í tollabandalag með okkar stærstu viðskiptaþjóðum. Aðild að tollabandalaginu myndi fela í sér að umsýsla með innflutningi minnkar og þar af leiðandi kostnaður sömuleiðis. Ekki er síður mikilvægt að tollsýsla með útflutningi minnkar að sama skapi og kostnaður þar með. Í umræðunni í sumar hefur oft verið minnst á nýsköpun og þróun. Þegar við hugsum með okkur hvaða þættir eru mikilvægastir fyrir ung sprotafyrirtæki eru tveir þættir hvað mikilvægastir. Aðgangur að þolinmóðu og sem ódýrustu fjármagni og aðgangur að mörkuðum með sem minnstum tilkostnaði. Það er hafið yfir vafa að hvoru tveggja eykst stórum með upptöku evru, fjármögnunarkostnaður minnkar og aðgangur að mörkuðum batnar. Þetta eru að mínu mati með verulegustu kostunum sem myndu fylgja aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku evru. Til þess þó að geta almennilega vegið og metið alla kosti og galla aðildar þurfum við að hafa alla myndina, sem við höfum ekki í dag. Hún fæst eingöngu með því að klára aðildarsamning, og svo það megi verða þurfum við að segja JÁ á laugardaginn kemur. Höfundur er þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingvar Þóroddsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar