Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Samúel Karl Ólason skrifar 27. ágúst 2026 14:40 Skemmdirnar í Nepal og Tíbet eru gífurlega miklar. AP/Niranjan Shrestha Að minnsta kosti 359 eru dánir og rúmlega níu hundruð er saknað eftir skyndiflóð og skriður í Nepal í gær. Svipað ástand er í Tíbet þar sem hundraða er enn saknað. Að minnsta kosti sjö hundruð erlendir ferðamenn eru meðal þeirra sem er saknað.
Heilu byggðirnar voru þurrkaðar út í flóðunum og skriðunum sem fylgdu þeim í gær. Að minnsta kosti tíu þúsund fjölskyldur eru á vergangi í Nepal, samkvæmt talsmanni Rauða krossins sem ræddi við blaðamenn Reuters. Flóðin virðast hafa byrjað í Himalæjafjöllum, Tíbetmegin, á jökulhruni, þar sem stór jökull hafi fallið og komið flóðunum og skriðunum af stað en sú kenning er studd af gervihnattamyndum. Eins og segir í grein kínverska ríkismiðilsins CGTN er fjallið sem umræddur jökull er á 6.781 metra hátt. Jökulhrunið er talið hafa gerst í um fimm þúsund metra hæð. Gyirong-höfn er svo í um 1.830 metra hæð yfir sjávarmáli. Myndbönd af hamförunum þar fóru eins og eldur í sinu um internetið í gær. Klippa: Skyndiflóð í Nepal skellur á Gyirong-höfn Hæðarmunurinn á milli þessara staða fer langleiðina með að útskýra kraftinn í flóðunum. Vatnig fór langa og bratta leið niður dali Himalæjafjalla, þar sem það safnaði grjóti, jarðvegi, trjám og öðru á leiðinni. Jökulhrunið átti sér þar að auki stað hátt í fjöllunum svo enginn varð var við það og flóðin féllu svo hratt niður fjöllin að ómögulegt var að vara fólk við. Flóðin fóru svo fyrst gegnum Tíbet og síðan Nepal. Erfitt fyrir björgunarsveitir að komast um Björgunarstörf eru hafin en vatnið hefur víða ekki gengið nægilega niður. Þá sópuðu flóðin vegum og brúm á brott og hefur reynst erfitt að ná til heilu samfélaganna í Nepal. Þess vegna hafa björgunarsveitir notast mikið við þyrlur. AP fréttaveitan segir her Nepal hafa bjargað rúmlega hundrað manns með þyrlum og flutt þá í skjól og til aðhlynningar. Líklega er þó nokkuð langt þar til búið er að ná almennilega utan um umfang hamfaranna. Þar að auki er óttast að fleiri flóð gætu fylgt á næstu dögum, þar sem vatn hefur verið að safnast saman vegna skriða ofarlega í fjöllunum.
Nepal Tíbet Náttúruhamfarir Tengdar fréttir Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Yfir 1.500 er saknað eftir að jökulhrun olli skyndiflóði á landamærum Nepal og Tíbet. Svæðið er vinsælt meðal göngufólks og pílagríma og meirihluti þeirra sem saknað er eru ferðamenn. 27. ágúst 2026 07:23 Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Hundraða er saknað eftir að stærðarinnar skyndiflóð og skriður sópuðu heilu þorpunum á brott og ollu miklum skemmdum í Nepal og Tíbet í morgun. Flóðin ollu einnig miklum skemmdum á innviðum og orkuverum en yfirvöld í Nepal hafa beðið Indverja og Kínverja um aðstoð vegna flóðanna. 26. ágúst 2026 10:55 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira
Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Yfir 1.500 er saknað eftir að jökulhrun olli skyndiflóði á landamærum Nepal og Tíbet. Svæðið er vinsælt meðal göngufólks og pílagríma og meirihluti þeirra sem saknað er eru ferðamenn. 27. ágúst 2026 07:23
Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Hundraða er saknað eftir að stærðarinnar skyndiflóð og skriður sópuðu heilu þorpunum á brott og ollu miklum skemmdum í Nepal og Tíbet í morgun. Flóðin ollu einnig miklum skemmdum á innviðum og orkuverum en yfirvöld í Nepal hafa beðið Indverja og Kínverja um aðstoð vegna flóðanna. 26. ágúst 2026 10:55