Auknar tekjur og minni kostnaður Freyja Þórisdóttir skrifar 26. ágúst 2026 18:28 Herdís Dröfn Fjeldsted er forstjóri Sýnar. Vísir/Vilhelm Tekjur Sýnar jukust um 2,8 prósent á milli ára á sama tíma og rekstrarkostnaður lækkaði um 2,3 prósent á milli ára. Forstjóri fyrirtækisins segir tap á ársfjórðungnum skýrast af afskriftum á sýningarréttum. Starfsfólki hefur fækkað um 47 á milli ára. Þetta kemur fram í nýbirtu uppgjöri fyrir annan ársfjórðung og fyrri helming ársins 2026 en þar er einnig greint frá því að heildarekjur á öðrum ársfjórðungi hafi numið 5,6 milljörðum króna. Tekjur af fjölmiðlum jukust um 12,3 prósent og auglýsingasala um 9,1 prósent. Afskriftir sett sitt mark á afkomuna Í uppgjörinu kemur fram að samhliða tekjuvexti hafi „áframhaldandi kostnaðaraðhald og aukin skilvirkni í rekstri skilað sér í lægri kostnaðargrunni og sterkari lykilmælikvörðum.“ Heildarrekstrarkostnaður lækkaði sem fyrr segir um 2,3 prósent á milli ára en haft er eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted forstjóra Sýnar að afskriftir sýningarrétta hafi setti sitt mark á afkomu eftir skatta. „Afskriftir sýningarrétta setja mark sitt á afkomu eftir skatta og skýra að tap annars ársfjórðungs jókst á milli ára, en undirliggjandi rekstur heldur áfram að styrkjast og tap fyrri árshelmings dregst saman frá sama tíma í fyrra.“ Öflugar einingar í góðum rekstri Áfram sé unnið að því að einfalda reksturinn en stöðugildi voru 367 í lok tímsbisins samaborið við 414 fyrir ári síðan. Launakostnaður hafi lækkað um 4,6 prósent samhliða breytingunni. Greint var frá því á dögunum að samningaviðræðum við Ása hf. um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hafi lokið án þess að endanlegur kaupsamningur væri undirritaður. Vef- og útvarpsmiðlar félagsins verði því áfram hluti af rekstri Sýnar. „Um er að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem búa yfir miklum möguleikum til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar. Þær munu því áfram styðja við kjarnastarfsemi félagsins. Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026,“ segir í uppgjörinu en það má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Áframhaldandi vöxtur og lykilmælikvarðar styrkjast Sýn hf. birtir í dag uppgjör fyrir annan ársfjórðung og fyrri helming ársins 2026 sem endurspeglar áframhaldandi vöxt í kjarnastarfsemi og bætta rekstrarafkomu. Heildartekjur á öðrum ársfjórðungi námu 5.559 m.kr. og jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu nam tekjuvöxturinn 5,5%. Vöxtur á fjórðungnum var einkum borinn uppi af kjarnastarfsemi félagsins. Tekjur af fjölmiðlun jukust um 12,3% milli ára, auglýsingasala um 9,1%, farsímatekjur um 7,0% og internettekjur um 2,1%. Samhliða tekjuvexti hefur áframhaldandi kostnaðaraðhald og aukin skilvirkni í rekstri skilað sér í lægri kostnaðargrunni og sterkari lykilmælikvörðum. Heildarrekstrarkostnaður lækkar um 2,3% milli ára, þrátt fyrir 93 m.kr. kostnaðarauka vegna breytts rekstrarfyrirkomulags á Sendafélaginu. Laun og launatengd gjöld lækka um 3,1%, þrátt fyrir kjarasamningsbundnar hækkanir, og annar rekstrarkostnaður lækkar um 8,4% í krefjandi efnahagsumhverfi. EBITDAaL nam 995 m.kr. á öðrum ársfjórðungi og hækkar um 39,0% frá sama tímabili í fyrra. Fjárfestingar námu 691 m.kr. og EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 305 m.kr., samanborið við 92 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2025. Handbært fé frá rekstri á 2F 2026 nam 871 m.kr. samanborið við 481 m.kr. á 2F 2025 og hækkar um 390 m.kr. milli ára. Samningaviðræðum við Ása hf. um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar lauk í ágúst án þess að endanlegur kaupsamningur væri undirritaður. Vef- og útvarpsmiðlar félagsins verða því áfram hluti af rekstri Sýnar. Um er að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem búa yfir miklum möguleikum til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar. Þær munu því áfram styðja við kjarnastarfsemi félagsins. Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026. Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri: „ Fyrri árshelmingur 2026 staðfestir áframhaldandi jákvæðan viðsnúning í rekstri Sýnar . EBITDAaL jókst um 42% á milli ára og nam 1.837 m.kr. Lykilmælikvarði félagsins, EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum, nam 310 m.kr. samanborið við 192 m.kr. á sama tímabili í fyrra, þrátt fyrir umtalsvert meiri fjárfestingar í sýningarréttum. Kjarnastarfsemin heldur áfram að vaxa. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu jukust tekjur um 6% á fyrri árshelmingi, þar sem fjölmiðlun, auglýsingasala og farsími leiddu vöxtinn. Fjölmiðlastarfsemin vex um 13% á milli ára, en hún stafar aðallega af Enska boltanum og fjölgun sjónvarpsáskrifta. Afskriftir sýningarrétta setja mark sitt á afkomu eftir skatta og skýra að tap annars ársfjórðungs jókst á milli ára, en undirliggjandi rekstur heldur áfram að styrkjast og tap fyrri árshelmings dregst saman frá sama tíma í fyrra. Á sama tíma höldum við áfram að einfalda reksturinn. Launakostnaður lækkar um 4,6% á milli ára og stöðugildi voru 367 í lok tímabilsins samanborið við 414 fyrir ári. Fjárhagsstaðan styrkist jafnt og þétt; handbært fé frá rekstri jókst um 45% á milli ára og hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa lækkað um rúman milljarð frá áramótum. Félagið hefur því aukið svigrúm til að fjárfesta í kjarnastarfseminni.“ Skattar, tollar og gjöld Uppgjör og ársreikningar Fjarskipti Tengdar fréttir Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar. 23. ágúst 2026 22:18 Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Sjá meira
Þetta kemur fram í nýbirtu uppgjöri fyrir annan ársfjórðung og fyrri helming ársins 2026 en þar er einnig greint frá því að heildarekjur á öðrum ársfjórðungi hafi numið 5,6 milljörðum króna. Tekjur af fjölmiðlum jukust um 12,3 prósent og auglýsingasala um 9,1 prósent. Afskriftir sett sitt mark á afkomuna Í uppgjörinu kemur fram að samhliða tekjuvexti hafi „áframhaldandi kostnaðaraðhald og aukin skilvirkni í rekstri skilað sér í lægri kostnaðargrunni og sterkari lykilmælikvörðum.“ Heildarrekstrarkostnaður lækkaði sem fyrr segir um 2,3 prósent á milli ára en haft er eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted forstjóra Sýnar að afskriftir sýningarrétta hafi setti sitt mark á afkomu eftir skatta. „Afskriftir sýningarrétta setja mark sitt á afkomu eftir skatta og skýra að tap annars ársfjórðungs jókst á milli ára, en undirliggjandi rekstur heldur áfram að styrkjast og tap fyrri árshelmings dregst saman frá sama tíma í fyrra.“ Öflugar einingar í góðum rekstri Áfram sé unnið að því að einfalda reksturinn en stöðugildi voru 367 í lok tímsbisins samaborið við 414 fyrir ári síðan. Launakostnaður hafi lækkað um 4,6 prósent samhliða breytingunni. Greint var frá því á dögunum að samningaviðræðum við Ása hf. um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hafi lokið án þess að endanlegur kaupsamningur væri undirritaður. Vef- og útvarpsmiðlar félagsins verði því áfram hluti af rekstri Sýnar. „Um er að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem búa yfir miklum möguleikum til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar. Þær munu því áfram styðja við kjarnastarfsemi félagsins. Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026,“ segir í uppgjörinu en það má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Áframhaldandi vöxtur og lykilmælikvarðar styrkjast Sýn hf. birtir í dag uppgjör fyrir annan ársfjórðung og fyrri helming ársins 2026 sem endurspeglar áframhaldandi vöxt í kjarnastarfsemi og bætta rekstrarafkomu. Heildartekjur á öðrum ársfjórðungi námu 5.559 m.kr. og jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu nam tekjuvöxturinn 5,5%. Vöxtur á fjórðungnum var einkum borinn uppi af kjarnastarfsemi félagsins. Tekjur af fjölmiðlun jukust um 12,3% milli ára, auglýsingasala um 9,1%, farsímatekjur um 7,0% og internettekjur um 2,1%. Samhliða tekjuvexti hefur áframhaldandi kostnaðaraðhald og aukin skilvirkni í rekstri skilað sér í lægri kostnaðargrunni og sterkari lykilmælikvörðum. Heildarrekstrarkostnaður lækkar um 2,3% milli ára, þrátt fyrir 93 m.kr. kostnaðarauka vegna breytts rekstrarfyrirkomulags á Sendafélaginu. Laun og launatengd gjöld lækka um 3,1%, þrátt fyrir kjarasamningsbundnar hækkanir, og annar rekstrarkostnaður lækkar um 8,4% í krefjandi efnahagsumhverfi. EBITDAaL nam 995 m.kr. á öðrum ársfjórðungi og hækkar um 39,0% frá sama tímabili í fyrra. Fjárfestingar námu 691 m.kr. og EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 305 m.kr., samanborið við 92 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2025. Handbært fé frá rekstri á 2F 2026 nam 871 m.kr. samanborið við 481 m.kr. á 2F 2025 og hækkar um 390 m.kr. milli ára. Samningaviðræðum við Ása hf. um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar lauk í ágúst án þess að endanlegur kaupsamningur væri undirritaður. Vef- og útvarpsmiðlar félagsins verða því áfram hluti af rekstri Sýnar. Um er að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem búa yfir miklum möguleikum til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar. Þær munu því áfram styðja við kjarnastarfsemi félagsins. Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026. Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri: „ Fyrri árshelmingur 2026 staðfestir áframhaldandi jákvæðan viðsnúning í rekstri Sýnar . EBITDAaL jókst um 42% á milli ára og nam 1.837 m.kr. Lykilmælikvarði félagsins, EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum, nam 310 m.kr. samanborið við 192 m.kr. á sama tímabili í fyrra, þrátt fyrir umtalsvert meiri fjárfestingar í sýningarréttum. Kjarnastarfsemin heldur áfram að vaxa. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu jukust tekjur um 6% á fyrri árshelmingi, þar sem fjölmiðlun, auglýsingasala og farsími leiddu vöxtinn. Fjölmiðlastarfsemin vex um 13% á milli ára, en hún stafar aðallega af Enska boltanum og fjölgun sjónvarpsáskrifta. Afskriftir sýningarrétta setja mark sitt á afkomu eftir skatta og skýra að tap annars ársfjórðungs jókst á milli ára, en undirliggjandi rekstur heldur áfram að styrkjast og tap fyrri árshelmings dregst saman frá sama tíma í fyrra. Á sama tíma höldum við áfram að einfalda reksturinn. Launakostnaður lækkar um 4,6% á milli ára og stöðugildi voru 367 í lok tímabilsins samanborið við 414 fyrir ári. Fjárhagsstaðan styrkist jafnt og þétt; handbært fé frá rekstri jókst um 45% á milli ára og hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa lækkað um rúman milljarð frá áramótum. Félagið hefur því aukið svigrúm til að fjárfesta í kjarnastarfseminni.“
Áframhaldandi vöxtur og lykilmælikvarðar styrkjast Sýn hf. birtir í dag uppgjör fyrir annan ársfjórðung og fyrri helming ársins 2026 sem endurspeglar áframhaldandi vöxt í kjarnastarfsemi og bætta rekstrarafkomu. Heildartekjur á öðrum ársfjórðungi námu 5.559 m.kr. og jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu nam tekjuvöxturinn 5,5%. Vöxtur á fjórðungnum var einkum borinn uppi af kjarnastarfsemi félagsins. Tekjur af fjölmiðlun jukust um 12,3% milli ára, auglýsingasala um 9,1%, farsímatekjur um 7,0% og internettekjur um 2,1%. Samhliða tekjuvexti hefur áframhaldandi kostnaðaraðhald og aukin skilvirkni í rekstri skilað sér í lægri kostnaðargrunni og sterkari lykilmælikvörðum. Heildarrekstrarkostnaður lækkar um 2,3% milli ára, þrátt fyrir 93 m.kr. kostnaðarauka vegna breytts rekstrarfyrirkomulags á Sendafélaginu. Laun og launatengd gjöld lækka um 3,1%, þrátt fyrir kjarasamningsbundnar hækkanir, og annar rekstrarkostnaður lækkar um 8,4% í krefjandi efnahagsumhverfi. EBITDAaL nam 995 m.kr. á öðrum ársfjórðungi og hækkar um 39,0% frá sama tímabili í fyrra. Fjárfestingar námu 691 m.kr. og EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 305 m.kr., samanborið við 92 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2025. Handbært fé frá rekstri á 2F 2026 nam 871 m.kr. samanborið við 481 m.kr. á 2F 2025 og hækkar um 390 m.kr. milli ára. Samningaviðræðum við Ása hf. um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar lauk í ágúst án þess að endanlegur kaupsamningur væri undirritaður. Vef- og útvarpsmiðlar félagsins verða því áfram hluti af rekstri Sýnar. Um er að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem búa yfir miklum möguleikum til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar. Þær munu því áfram styðja við kjarnastarfsemi félagsins. Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026. Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri: „ Fyrri árshelmingur 2026 staðfestir áframhaldandi jákvæðan viðsnúning í rekstri Sýnar . EBITDAaL jókst um 42% á milli ára og nam 1.837 m.kr. Lykilmælikvarði félagsins, EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum, nam 310 m.kr. samanborið við 192 m.kr. á sama tímabili í fyrra, þrátt fyrir umtalsvert meiri fjárfestingar í sýningarréttum. Kjarnastarfsemin heldur áfram að vaxa. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu jukust tekjur um 6% á fyrri árshelmingi, þar sem fjölmiðlun, auglýsingasala og farsími leiddu vöxtinn. Fjölmiðlastarfsemin vex um 13% á milli ára, en hún stafar aðallega af Enska boltanum og fjölgun sjónvarpsáskrifta. Afskriftir sýningarrétta setja mark sitt á afkomu eftir skatta og skýra að tap annars ársfjórðungs jókst á milli ára, en undirliggjandi rekstur heldur áfram að styrkjast og tap fyrri árshelmings dregst saman frá sama tíma í fyrra. Á sama tíma höldum við áfram að einfalda reksturinn. Launakostnaður lækkar um 4,6% á milli ára og stöðugildi voru 367 í lok tímabilsins samanborið við 414 fyrir ári. Fjárhagsstaðan styrkist jafnt og þétt; handbært fé frá rekstri jókst um 45% á milli ára og hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa lækkað um rúman milljarð frá áramótum. Félagið hefur því aukið svigrúm til að fjárfesta í kjarnastarfseminni.“
Skattar, tollar og gjöld Uppgjör og ársreikningar Fjarskipti Tengdar fréttir Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar. 23. ágúst 2026 22:18 Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Sjá meira
Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar. 23. ágúst 2026 22:18