Sport

Hundrað metra met Bolt „fallið“

Siggeir Ævarsson skrifar
Usain Bolt var eflaust furðu lostinn þegar hann heyrði fréttirnar
Usain Bolt var eflaust furðu lostinn þegar hann heyrði fréttirnar vísir/Getty

Usain Bolt er fljótasti mennski spretthlauparinn í sögunni en frá 2009 hefur engum manni tekist að hlaupa 100 metrana hraðar en hann eða á 9,58 sekúndum. En nú hefur vélmenni skotið honum ref fyrir rass.

Í Peking fer nú fram heimsmeistaramót vélmenna í ýmsum íþróttagreinum þar sem yfir 2.000 vélmenni í 666 liðum etja kappi. Í undarásum í 100 metra spretthlaupi hlupu tvö vélmenni á betri tíma en heimsmet Bolt.

Eins og sést í meðfylgjandi myndbandi var það ekki startið sem tryggði þennan ótrúlega tíma en vélmennin bættu heldur betur í hraðann og komu raunar svo hratt í mark að þau klesstu harkalega á dýnuna við enda brautarinnar.

Tæknin á bakvið vélmennin hefur engu að síður tekið ótrúlegum framförum frá síðasta móti sem haldið var í fyrra þar sem besti tíminn var 21,5 sekúnda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×