Þrátt fyrir mikla hækkun er raungengið talið aðeins „örlítið“ yfirverðlagt
Á meðan sum útflutningsfyrirtæki eru í auknum mæli farin að kvarta undan skertri samkeppnishæfni vegna sögulega hás raungengis krónunnar þá sýnir nýlegt mat bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabanka Íslands að það er ekki mjög yfirverðlagt með hliðsjón af því sem samrýmist þjóðhagslegu jafnvægi. Sjóðurinn hefur ekki áhyggjur af sjálfbærni erlendrar stöðu þjóðarbúsins, þótt hún hafi veikst eilítið síðustu ár, en varar við því að hækki launakostnaður áfram umfram framleiðniaukningu muni það grafa undan stöðu útflutningsgreina.
Tengdar fréttir
Erlend staða íslenska þjóðarbúsins ein sú besta meðal ríkja í Evrópu
Aðeins fáein Evrópuríki geta státað sig af því að vera með sterkari erlenda stöðu í samanburði við Ísland en hrein eignastaða þjóðarbúsins í hlutfalli við landsframleiðslu hefur núna haldist yfir 40 prósent frá ársbyrjun 2024. Áratugur er liðin síðan Ísland náði þeim áfanga að vera hreinn útflytjandi fjármagns og hefur það meðal annars átt ríkan þátt í meiri stöðugleika íslensku krónunnar.
Krónan flökt mun minna gagnvart evru síðustu ár en margar aðrar myntir
Gengisflökt krónunnar gagnvart evru hefur minnkað verulega frá árinu 2023 og er talsvert minna annarra helstu mynta, en þar spilar meðal annars inn í jafnvægi á utanríkisviðskiptum og sveiflujafnandi hlutverk Seðlabankans og lífeyrissjóða. Þrátt fyrir tugmilljarða innflutning vegna uppbyggingar gagnavera var afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum á fyrsta fjórðungi ársins.
Raungengi krónunnar lítillega yfirverðlagt að mati AGS og Seðlabankans
Þótt raungengi krónunnar sé búið að rísa hratt að undanförnu, sem hefur þrengt nokkuð að samkeppnishæfni margra útflutningsfyrirtækja, þá er það aðeins nokkrum prósentum hærra en nemur nýlegi mati Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á jafnvægisraungenginu. Með hliðsjón af því er ekki endilega líklegt að mikil leiðrétting verði á genginu á næstunni.
Mikill rekstrarbati Icelandair „ólíklegur“ miðað við núverandi sterkt gengi krónu
Sögulega hátt raungengi krónunnar og framleiðsluspenna setur reksturinn hjá Icelandair í „klemmu“, að mati hlutabréfagreinenda, en verðmat á flugfélaginu lækkar umtalsvert eftir uppgjör sem var langt undir væntingum. Það vinnur með Icelandair að helsti keppinauturinn er að minnka umsvifin en hins vegar er erfitt að sjá rekstrarbata í kortunum næstu misserin við núverandi gildi krónunnar á móti Bandaríkjadal.
Sennilegt að gjaldeyriskaupin miði að því að halda aftur af styrkingu krónunnar
Ekki er að sjá að mikil þörf sé á því að stækka gjaldeyrisforða Seðlabankans um þessar mundir, að sögn sérfræðings á gjaldeyrismarkaði, sem telur sennilegra að áform bankans um að hefja á nýjan leik regluleg gjaldeyriskaup miði að því að halda aftur af gengisstyrkingu krónunnar. Markaðurinn ætti að eiga auðvelt með að mæta þessari gjaldeyriseftirspurn hjá Seðlabankanum á komandi mánuðum.
Með fleiri gjaldeyrisstoðum gæti hátt raungengi verið „komið til að vera“
Þrátt fyrir sögulega hátt raungengi krónunnar samhliða miklum launahækkunum ætti öflug ferðaþjónusta að geta þrifist, að mati sérfræðings á gjaldeyrismarkaði, en það kallar á aðlögunarhæfni greinarinnar og smám saman muni starfsemi með litla framlegð verða ýtt út úr landi vegna launakostnaðar. Uppgjör Icelandair á öðrum fjórðungi, sem var vel undir væntingum greinenda, litaðist meðal annars af sterku gengi krónunnar og forstjóri flugfélagsins nefndi að sagan sýndi að þessi staða væri ekki sjálfbær.