Erlent

Hvirfil­bylur olli usla í sunnan­verðu Frakk­landi

Kjartan Kjartansson skrifar
Keppni í þriðja áfanga Spánarhjólreiðanna í Suður-Frakklandi var hætt í gær eftir að haglél dundi á keppendum.
Keppni í þriðja áfanga Spánarhjólreiðanna í Suður-Frakklandi var hætt í gær eftir að haglél dundi á keppendum. Vísir/Getty

Tæplega fjörutíu manns eru slasaðir og um þrjú hundruð heimili eru skemmd eftir að hvirfilbylur gekk yfir smáþorp í sunnanverðu Frakklandi í gær. Tveir eru sagðir alvarlega slasaðir.

Vindhraði mældist um 32,5 metrar á sekúndu í hvirfilbylnum sem reif þök af húsum í þorpinu Pomas í suðvestanverðu Frakklandi í gær. Um 1.400 heimili voru enn án rafmagns vegna óveðursins í morgun, að sögn AP-fréttastofunnar.

„Hálf þorpið er í rúst,“ hefur breska ríkisútvarpið eftir einum þorpsbúa úr viðtali við franskan fjölmiðil.

Viðvörun vegna þrumuveðurs var í gildi á svæðinu þegar hvirfilbylurinn gekk yfir. Þriðja áfanga Spánarhjólreiðanna um sunnanvert Frakkland var frestað þegar keppendur þurftu að leita sér skjóls vegna hagléls þegar um fimmtán kílómetrar voru eftir í rásmark.

Franska veðurstofan segir að árlega gangi nokkrir tugir hvirfilbylja yfir landið en flestir þeirra séu máttlitlir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×