„Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Eiður Þór Árnason skrifar 24. ágúst 2026 17:37 Haukur Ægir sést hér lengst til hægri. Vísir/Vilhelm Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi þá ákvörðun embættis héraðssaksóknara að ákæra ekki svokallaðan skutlara fyrir líkamsárás. Sá hlaut dóm fyrir að áreita stúlku kynferðislega áður en aðstandandi stúlkunnar veittist að honum. Skutlarinn er sakaður um að hafa barið aðstandandann í höfuðið með spýtu í átökum þeirra.
Ríkissaksóknari hefur nú gert embætti héraðssaksóknara að gefa út ákæru í málinu. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við fréttastofu en Nútíminn greindi fyrst frá. Hann kveðst ekki geta greint frá röksemdum ríkissaksóknara eða rætt málið efnislega. Mál skutlarans hefur vakið talsverða athygli en Haukur Ægir Hauksson, sem var einn sakborninga í Sólheimajökulsmálinu svokallaða, var ákærður fyrir að hafa reynt að myrða hann í kjölfar kynferðisbrotsins. Hann var í apríl í fyrra dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir líkamsárás gagnvart skutlaranum en sýknaður af ákæru fyrir tilraun til manndráps. Svokallaðir skutlarar eru einstaklingar sem aka farþegum gegn gjaldi án þess að hafa leigubílaleyfi. Haukur Ægir steig fram fyrr á þessu ári og kvaðst hafa verið ranglega sakaður um tilraun til manndráps. Fullyrti hann í hlaðvarpinu Brotkasti að skutlarinn hefði átt upptök að átökum þeirra með því að lemja hann og vinkonu hans með kylfu. Vinkona hans er móðir stúlkunnar sem skutlarinn áreitti. Káfaði á stúlkunni og reyndi að kyssa Skutlarinn var í janúar í fyrra dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 11. mars 2023, í bifreið sem hann ók á leið frá Hafnarstræti að ótilgreindum stað í Reykjavík, káfað á brjóstum og kynfærum stúlkunnar innanklæða og reynt að kyssa hana tungukossum. Í dómi héraðsdóms var sérstaklega tekið fram að við ákvörðun refsingar yrði litið til þess að í framhaldi af atvikum málsins hafi verið ráðist alvarlega á manninn og hann hefði ekki enn jafnað sig fyllilega af þeirri árás. Í nóvember dæmdi Landsréttur manninn í eins árs fangelsi og taldi, í ljósi skilorðsrofs hans á fyrri dómi og alvarleika brotsins, ekki efni til að binda refsinguna skilorði. Fréttin hefur verið uppfærð.
Dómsmál Lögreglumál Tengdar fréttir „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Svokallaður skutlari, sem hlaut dóm fyrir að áreita stúlku kynferðislega, áður en aðstandandi stúlkunnar veittist að honum, verður ekki ákærður fyrir að berja aðstandandann í höfuðið með spýtu í átökum þeirra. 4. maí 2026 15:35 „Skutlari“ áreitti stúlku og varð fyrir alvarlegri líkamsárás Svokallaður „skutlari“ hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita stúlku kynferðislega í bifreið sinni. Aðstandandi stúlkunnar tók hann kyrkingartaki í kjölfarið og hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Sá var nýverið dæmdur í áralangt fangelsi fyrir aðkomu að Sólheimajökulsmálinu svokallaða. 30. janúar 2025 17:18 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira
„Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Svokallaður skutlari, sem hlaut dóm fyrir að áreita stúlku kynferðislega, áður en aðstandandi stúlkunnar veittist að honum, verður ekki ákærður fyrir að berja aðstandandann í höfuðið með spýtu í átökum þeirra. 4. maí 2026 15:35
„Skutlari“ áreitti stúlku og varð fyrir alvarlegri líkamsárás Svokallaður „skutlari“ hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita stúlku kynferðislega í bifreið sinni. Aðstandandi stúlkunnar tók hann kyrkingartaki í kjölfarið og hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Sá var nýverið dæmdur í áralangt fangelsi fyrir aðkomu að Sólheimajökulsmálinu svokallaða. 30. janúar 2025 17:18