Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Freyja Þórisdóttir skrifar 22. ágúst 2026 19:17 Það er aragrúi viðburða fram undan á Menningarnótt 2026. Vísir/Vilhelm Þrátt fyrir að veðrið sé að mati margra ekki með besta móti má ætla að fjöldi fólks leggi leið sína niður í miðbæ Reykjavíkur í kvöld á Menningarnótt. Dagurinn hefur gengið eins og í sögu og er útlit fyrir að allt skipulag, götulokanir þar á meðal, hafi farið fram líkt og best væri á kosið. Áratuga reynsla spili inn í velheppnaða viðburði sem þessa.
Er þetta meðal þess sem fram kom í samtali blaðamanns og Jóhanns Karls Þórissonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en hann segist ekki vita til þess að nein vandræði hafi komið upp í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið sem fór fram í dag, laugardaginn 22. ágúst. Dagskráin gangi vel og allt skipulagt í þaula, enda hafi Menningarnótt verið haldin árlega síðan 1996 og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu því skipuð reynsluboltum sem hafi skipulagt daginn svo árum skipti. „Þannig að það er ekkert að fara að klikka þar, vonandi verður fólk bara í góðu skapi,“ segir hann og nefnir að hann hafi ekki heyrt annað en að allir hafi virt götulokanir í miðbænum. „Ég hef ekki heyrt annað. Allir glaðir,“ segir hann og bætir við að því miður sé ekkert sem lögregluembættið geti gert í því að ekki hafi ræst úr veðrinu en hann voni að fólk láti rigningu ekki fara um of í taugarnar á sér.
Lögreglumál Reykjavík Hlaup Menningarnótt Tengdar fréttir Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp. 21. ágúst 2026 21:09 Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Yfir fimmtán þúsund keppendur skráðu sig í hlaup Reykjavíkurmaraþonsins og hafa safnast tæpar þrjú hundruð milljónir til hinna ýmsu góðgerðarfélaga. Hér var fylgst með beinni útsendingu frá maraþoninu. 22. ágúst 2026 08:29 Mest lesið Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Innlent Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira
Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp. 21. ágúst 2026 21:09
Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Yfir fimmtán þúsund keppendur skráðu sig í hlaup Reykjavíkurmaraþonsins og hafa safnast tæpar þrjú hundruð milljónir til hinna ýmsu góðgerðarfélaga. Hér var fylgst með beinni útsendingu frá maraþoninu. 22. ágúst 2026 08:29
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent