Viðskipti erlent

Tollasamkomulag Banda­ríkjanna og Kanada út um þúfur

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Tollarnir eru til marks um verulega aukningu á spennu milli nágrannaríkjanna vestanhafs.
Tollarnir eru til marks um verulega aukningu á spennu milli nágrannaríkjanna vestanhafs. AP/Mark Schiefelbein

Bandaríkin hafa sett fimmtíu prósenta tolla á ýmsar kanadískar vörur þar í landi eftir að nokkurra daga samningaviðræður nágrannaríkjanna á milli runnu í sandinn. Forsætisráðherra Kanada heitir sams konar tollum á bandarískar vörur.

Samninganefndir höfðu átt í hörðum viðræðum við Bandaríkin frá því í júlí þegar Trump hótaði að leggja fimmtíu prósenta toll á innfluttar kanadískar vörur og áttu þeir að taka gildi á miðvikudaginn síðastliðinn.

Trump hafði tímabundið frestað gildistöku boðaðra refsitolla vegna samningaviðræðna. Hann sagði að samningsaðilar væru á lokametrunum við að undirrita samning sem hagnaðist báðum ríkjum.

Sjá einnig: Vill leggja fimm­tíu prósenta toll á kanadískar vörur

Forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, stöðvaði viðræðurnar í gær og sagði að í þeim hefði ekki tekist að tryggja hagsmuni landsins. Breytingar Bandaríkjanna á tillögum á elleftu stundu væru ósanngjarnar og óhagkvæmar. Carney sagðist muna leggja gagnkvæma tolla á nágranna sinn í suðri, „dal fyrir dal.“

Jamieson Grerr, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, sagði í yfirlýsingu að Kanada hefði neitað að ganga frá samningi á þeim forsendum sem höfðu verið fyrr í vikunni og með því hefði ríkið raskað því jafnvægi sem hafði verið náð.

Spenna milli þessara tveggja stóru viðskiptaþjóða hefur kraumað undir niðri síðan Trump tók aftur við embætti í janúar á síðasta ári og hóf víðtæka refsitollastefnu segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×