Sakamálið sem skekur Bandaríkin Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 22. ágúst 2026 19:34 Lögmaður Lindsay Clancy hefur vakið mikla athygli vegna málsins. Josh Reynolds/AP Réttarhöld yfir bandarískri konu, sem játað hefur að hafa myrt börnin sín þrjú, hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim. Mikill fjöldi fylgist með réttarhöldum í beinni útsendingu á degi hverjum og hefur málið hrundið af stað umræðu um fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is. Málið er kennt við Lindsay Clancy, móður sem ákærð er fyrir að hafa myrt börnin sín þrjú á meðan maðurinn hennar skaust í apótek en hún reyndi jafnframt að svipta sig lífi. Réttarhöld standa þessa dagana yfir. Játning hennar liggur fyrir í málinu en þrátt fyrir það telja fjölmargir á samfélagmiðlum að gögn í málinu bendi til þess að hún hafi ekki getað framið voðaverkin og spyrja sig hvers vegna eiginmaður hennar hafi aldrei verið grunaður í málinu. Lindsay hefur af nær öllum vitnum sem komið hafa fyrir réttin verið lýst sem venjulegri, umhyggjusamri móður og snúast réttarhöldin að miklu leyti um að færa sönnur á að Lindsay hafi myrt börn sín í sturlunarástandi. Fjölmargir fylgjast með réttarhöldunum í beinni útsendingu á Youtube.Mark Chavous/AP Hún glímdi við fæðingarþunglyndi og hafði ítrekað reynt að leita sér hjálpar. Óhugsandi Inga Kristjánsdóttir, hlaðvarpsstjórnandi Illverks er ein þeirra sem fylgst hefur með málinu í beinni útsendingu. Hún telur nokkrar ástæður fyrir því að málið veki svo mikla athygli. „Ég held að það sé í fyrsta lagi af því þetta er svo ótrúlega venjuleg móðir og fólki finnst þetta bara svo ótrúlega óhugsandi hvernig móðir getur myrt börnin sín svona í rauninni upp úr þurru. Hún hafði mörg önnur tækifæri til þess en hún sendir manninn sinn út í örstutt erindi. Ég held að fólk eigi bara einhvern veginn erfitt með að sætta sig við þá staðreynd.“ Umræða um aðgengi að heilbrigðisþjónustu Þá telur Inga að málið veki athygli vegna þeirrar staðreyndar að margir tengi við þann raunveruleika að reyna að leita sér hjálpar vegna andlegra erfiðleika en komi oft að lokuðum dyrum. „Ég held að þetta sé líka vegna þess að þetta er bara svo mannlegt en á sama tíma svo ótrúlega óhugsandi.“ Minnir á réttarhöldin yfir Depp og Heard Inga segir áhuga fólks á málinu minna á réttarhöldin yfir Johnny Depp og Amber Heard sem heimsbyggðin fylgdist með límd við skjáinn. „Síðasta svona mál er Andrea Yates málið frá árinu 2001, sem var svipað mál, móðir sem myrðir börnin sín sex. Margir líkja þessu máli við hennar mál og álíka margir að fylgjast með.“ Sjálf er Inga vakin og sofin yfir málinu og gefur út daglega hlaðvarpsþætti upp úr réttarhöldunum. „Það má eiginlega segja að þetta sé það eina sem ég er búin að vera að gera síðustu daga, þetta og hekla yfir þessu.“ Erlend sakamál Hlaðvörp Bandaríkin Mál Lindsay Clancy Tengdar fréttir Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik. 4. ágúst 2026 13:02 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Sjá meira
Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is. Málið er kennt við Lindsay Clancy, móður sem ákærð er fyrir að hafa myrt börnin sín þrjú á meðan maðurinn hennar skaust í apótek en hún reyndi jafnframt að svipta sig lífi. Réttarhöld standa þessa dagana yfir. Játning hennar liggur fyrir í málinu en þrátt fyrir það telja fjölmargir á samfélagmiðlum að gögn í málinu bendi til þess að hún hafi ekki getað framið voðaverkin og spyrja sig hvers vegna eiginmaður hennar hafi aldrei verið grunaður í málinu. Lindsay hefur af nær öllum vitnum sem komið hafa fyrir réttin verið lýst sem venjulegri, umhyggjusamri móður og snúast réttarhöldin að miklu leyti um að færa sönnur á að Lindsay hafi myrt börn sín í sturlunarástandi. Fjölmargir fylgjast með réttarhöldunum í beinni útsendingu á Youtube.Mark Chavous/AP Hún glímdi við fæðingarþunglyndi og hafði ítrekað reynt að leita sér hjálpar. Óhugsandi Inga Kristjánsdóttir, hlaðvarpsstjórnandi Illverks er ein þeirra sem fylgst hefur með málinu í beinni útsendingu. Hún telur nokkrar ástæður fyrir því að málið veki svo mikla athygli. „Ég held að það sé í fyrsta lagi af því þetta er svo ótrúlega venjuleg móðir og fólki finnst þetta bara svo ótrúlega óhugsandi hvernig móðir getur myrt börnin sín svona í rauninni upp úr þurru. Hún hafði mörg önnur tækifæri til þess en hún sendir manninn sinn út í örstutt erindi. Ég held að fólk eigi bara einhvern veginn erfitt með að sætta sig við þá staðreynd.“ Umræða um aðgengi að heilbrigðisþjónustu Þá telur Inga að málið veki athygli vegna þeirrar staðreyndar að margir tengi við þann raunveruleika að reyna að leita sér hjálpar vegna andlegra erfiðleika en komi oft að lokuðum dyrum. „Ég held að þetta sé líka vegna þess að þetta er bara svo mannlegt en á sama tíma svo ótrúlega óhugsandi.“ Minnir á réttarhöldin yfir Depp og Heard Inga segir áhuga fólks á málinu minna á réttarhöldin yfir Johnny Depp og Amber Heard sem heimsbyggðin fylgdist með límd við skjáinn. „Síðasta svona mál er Andrea Yates málið frá árinu 2001, sem var svipað mál, móðir sem myrðir börnin sín sex. Margir líkja þessu máli við hennar mál og álíka margir að fylgjast með.“ Sjálf er Inga vakin og sofin yfir málinu og gefur út daglega hlaðvarpsþætti upp úr réttarhöldunum. „Það má eiginlega segja að þetta sé það eina sem ég er búin að vera að gera síðustu daga, þetta og hekla yfir þessu.“
Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.
Erlend sakamál Hlaðvörp Bandaríkin Mál Lindsay Clancy Tengdar fréttir Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik. 4. ágúst 2026 13:02 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Sjá meira
Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik. 4. ágúst 2026 13:02