Innlent

Bein út­sending: Land­búnaður í heimi breytinga

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Trausti Hjálmarsson, formaður bændasamtaka Íslands, á síðasta bændaþingi.
Trausti Hjálmarsson, formaður bændasamtaka Íslands, á síðasta bændaþingi. Vísir/Anton Brink

Bændasamtök Íslands og Samtök fyrirtækja í landbúnaði standa fyrir málþingi undir yfirskriftinni Landbúnaður í heimi breytinga - öryggi, verðmætasköpun og framtíðartækifæri. Málþingið er í beinni útsendingu á Vísi.

„Á málþinginu verður fjallað um stöðu og hlutverk íslensks landbúnaðar í heimi sem einkennist af aukinni óvissu í alþjóðamálum, breytingum á matvælamörkuðum og vaxandi áherslu á fæðuöryggi og áfallaþol samfélaga,“ segir í tilkynningu. 

Meðal umræðuefna málþingsins eru matvælaframleiðsla á Norðurlöndunum, landbúnaður og fæðuöryggi í þjóðaröryggi Íslands og matvælamarkaðir á umbrotatímum.

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, setur þingið og flytur Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarp. Málþingið hefst klukkan þrjú og er hægt að fylgjast með því í spilaranum hér fyrir neðan.

„Markmið málþingsins er að efla umræðu um mikilvægi landbúnaðar fyrir fæðuöryggi, verðmætasköpun og samfélagslegt öryggi Íslands á tímum mikilla breytinga.“

Dagskrá málþingsins má sjá hér:

  • Setning - Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands
  • Ávarp - Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands
  • Matvælaframleiðsla á Norðurslóðum - Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Landbúnaður og fæðuöryggi í þjóðaröryggi Íslands - Helgi Valberg Jensson, ritari þjóðaröryggisráðs
  • Matvælamarkaður á umbrotatímum - Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði
  • Óvissa í alþjóðamálum: áskoranir og tækifæri fyrir íslenskan landbúnað - Ingólfur Friðriksson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins

Pallborðsumræður

  • Björgvin Þór Björgvinsson, viðskiptastjóri sjávarafurða og matvæla hjá Íslandsstofu
  • Sigríður Snævarr, sendiherra til margra ára
  • Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun
  • Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara



Fleiri fréttir

Sjá meira


×