„Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 18. ágúst 2026 20:02 Sunneva Einarsdóttir fagnaði þrítugsafmælinu með stæl. Þóra Ólafs „Ég hef lengi vel verið hrædd við þessi tímamót en get sagt það að það er gjörsamlega engin munur. Þannig ég er bara spennt, það eru skemmtilegir tímar framundan,“ segir hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir sem fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu með stæl á dögunum. Blaðamaður ræddi við hana um tímamótin og teitið.
Sunneva var harðákveðin í því að fagna stórafmælinu með stæl. „Ég vissi að ég vildi halda eitthvað geggjað teiti til þess að fagna með öllu mínu fólki en ég vissi samt að ég vildi ekki gera það á afmælisdaginn minn. Ég á afmæli beint á eftir Verslunarmannahelgina sem getur verið erfitt. Svo er ég ljón í stjörnumerki þannig auðvitað vil ég lengja afmælisvikuna mína í tvær vikur.“ Á afmælisdaginn sjálfan tóku Sunneva og Benedikt Bjarnason unnusti hennar skyndiákvörðun og skelltu sér til Parísar. View this post on Instagram A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss) „Ég hef alltaf talað um að eyða þrítugs afmælinu mínu í Champagne héraði Frakklands og heimsækja leiði kampavínsguðsins Dom Perignon og við létum þann draum rætast. Annað verkefni sem ég hafði í París var líka að finna kjól frá ítalska tískuhúsinu Pucci fyrir afmælið mitt, sem tókst. Ég vildi verða þrítug í Pucci. Partýdagurinn var svo akkúrat viku seinna,“ segir Sunneva og brosir. Veisludagurinn var svo ein allsherjar gleði sem byrjaði snemma. „Ég og bestu vinkonur mínar gerðum dag úr þessu, fórum í förðum í Reykjavík Makeup School og græjuðum okkur saman þar. Allt partýið small saman svo vel og það er mikilvægt að vera með gott fólk í að aðstoða við svona veislur. Ég hélt veisluna í nýjum sal sem heitir Róót og var að opna núna í vikunni. Hann var svo ótrúlega fallegur og sumarlegur sem er nákvæmlega þemað sem ég vildi. Við vorum með glæsilegar veitingar og drykki og margaritu-bar sem er mjög mikið ég þar sem ég er þekkt fyrir mínar margarítur. Svo var ekkert gefið eftir í skreytingunum.“ View this post on Instagram A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss) Uppáhalds tónlistarmenn Sunnevu tróðu upp og hún segist sjaldan hafa skemmt sér jafn vel. „Emmsjé Gauti, Nussun, Húgó, Maron Birnir og Eyþór Wöhler trylltu lýðinn og það var svo gaman. Ég er bara svo ótrúlega þakklát að geta komið saman og fagnað með mínu besta fólki í partý sumarsins.“ Hún segist fara fílefld inn í nýjan áratug. „Ég hef lengi vel verið hrædd við þessi tímamót en get sagt það að það er gjörsamlega engin munur. Þannig ég er bara spennt, það eru skemmtilegir tímar framundan.“ Aðspurð hvort hún sé með einhverja drauma fyrir næsta áratug segir Sunneva: „Já, það var svo mikið sem maður óskaði sér á afmælisdaginn, en maður má ekki segja frá óskum, þá rætast þær ekki. Ég er bara ótrúlega spennt fyrir lífinu og er svo þakklát fyrir lífið, tækifærin og vinnuna mína. Markmiðið er bara að halda áfram og gera enn stærra og betra.“ Hér má sjá vel valdar myndir frá afmælisfjörinu sem Þóra Ólafsdóttir tók: Sunneva og mamma hennar bleikar og flottar.Þóra Ólafs Sunneva var í öllu bleiku, þar á meðal bleikum Pucci kjól, við steinaða hæla.Þóra Ólafs Benedikt unnusti Sunnevu til hægri rokkaði hör-jakkaföt.Þóra Ólafs Afmælisstelpan fékk bongó blíðu í veislunni. Þóra Ólafs Vinir að skála.Þóra Ólafs Glæsileg afmæliskaka.Þóra Ólafs Emmsjé Gauti tók vel valin lög og Sunneva steig á stokk með honum.Þóra Ólafs Bensi alltaf með myndavélina á kantinum!Þóra Ólafs Sævar Breki í Nussun skálaði.Þóra Ólafs Húgó og tvíeykið Nussun komu fram.Þóra Ólafs Skál í margarítur.Þóra Ólafs Sunneva og Eva Einars glæsilegar.Þóra Ólafs Brjálað stuð!Þóra Ólafs Veitingar voru frá Múlakaffi.Þóra Ólafs Binni Glee lét sig ekki vanta í bleikum jakka.Þóra Ólafs Sunneva ásamt ömmu sinni.Þóra Ólafs Svana Lovísa sá um blómaskreytingar.Þóra Ólafs Kúlur skreyttar Sunnevu.Þóra Ólafs Bestu vinkonurnar Birta Líf og Sunneva fóru upp á svið með Nussun.Þóra Ólafs Jóhanna Helga og Birta Líf bestu vinkonur Sunnevu voru með ræðu.Þóra Ólafs Eva Einars í kvöldsólinni.Þóra Ólafs Binni Glee og Friðþóra.Þóra Ólafs Parið Arnar Gauti, jafnan þekktur sem Lil Gurly, og fyrirsætan Brynja Bjarna. Þóra Ólafs Flottir í tauinu.Þóra Ólafs Emmsjé Gauti upp með hendur.Þóra Ólafs Gugga í gúmmíbát lét sig ekki vanta og mætti í bleiku.Þóra Ólafs Sunneva hélt tölu.Þóra Ólafs Sævar og Egill í stuði.Þóra Ólafs Austmann í fíling.Þóra Ólafs Stuðið var í hæstu hæðum.Þóra Ólafs Ungstirnið Maron Birnir.Þóra Ólafs Margarítur.Þóra Ólafs Heiður Ósk eigandi Reykjavík MakeUp School farðaði Sunnevu.Þóra Ólafs Jóhanna Helga, Sunneva, Birta Líf og Eva Einars glæsilegar.Þóra Ólafs Eyþór og Sunneva stigu trylltan dans.Þóra Ólafs Sunneva með glæsilega afmælisköku frá Sætum syndum.Þóra Ólafs
Tímamót Samkvæmislífið Tíska og hönnun Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira