Sá besti vann þrátt fyrir heimskulega ákvörðun: „Ekki borða tikka masala“ Aron Guðmundsson skrifar 17. ágúst 2026 10:00 Enn ein gullverðlaun Duplantis. Hann hefur nú fjórum sinnum orðið Evrópumeistari, þrisvar sinnum heimsmeistari og í tvígang hefur hann orðið Ólympíumeistari. Vísir/EPA Sænski stangarstökkvarinn Armand Duplantis vann sín þrettándu gullverðlaun í röð á stórmóti er hann stökk hæst á EM í frjálsum íþróttum í Birmingham í gær og setti nýtt mótsmet. Armand tileinkaði ömmu sinni, sem lést í júlí, gullverðlaunin en bölsótaðist svo út í val sitt á veitingastað fyrir keppni sem olli því að klósettið varð hans besti vinur.
Það var stökk upp á sex metra og fimmtán sentímetra sem tryggði Duplantis enn einn Evrópumeistaratitilinn og er þetta í fjórða sinn í röð sem hann vinnur þann titil. Hann setti um leið mótsmet með stökkinu. „Gullið tileinka ég ömmu minni,“ sagði Duplantis í viðtali við SVT Sport eftir keppni í gær en hún lést, 92 ára gömul, í síðasta mánuði. Duplantis sagði síðustu vikur fyrir mót hafa verið stressandi fyrir sig. Hann var bara ánægður með að hafa geta mætt til leiks og tekið gullið. Svíinn er fyrsti stangarstökkvarinn í sögunni til þess að vinna fjögur Evrópumót. „Ég var að glíma við smá hnjask fyrir nokkrum vikum og vildi því farra varlega. Þetta var nóg fyrir mig núna,“ sagði Duplantis sem hefði geta reynt við enn eitt heimsmetið en kaus að gera það ekki. Duplantis hefur alls fimmtán sinnum bætt heimsmetið í stangarstökki. Þá var það ekki til að auðvelda hlutina fyrir Duplantis að hann fékk í magann skömmu fyrir keppni eftir að hafa borðað indverskan mat á veitingastað sem fór illa í hann. „Þetta er það heimskulegasta sem ég hef gert í lífinu,“ sagði Duplantis við Aftonbladet. „Ég get ekki skilið það af hverju ég valdi að fá mér indverskan mat fyrir keppni... Ég er búinn að vera á klósettinu í allan dag. Ég hélt þetta yrði ekki svona slæmt.“ Hann hefði átt að sjá þetta fyrir. „Ekki borða tikka masala fyrir keppni. Það er mitt ráð til ykkar.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Arnar situr fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Dýrmætur sigur HK-inga Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Tapaði titlinum í lokabeygjunni „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Sjá meira