Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Lovísa Arnardóttir skrifar 17. ágúst 2026 08:10 Syttan er um 56 metrar á hæð. Vísir/EPA Risastór stytta af Maríu mey, sem talin er vera sú hæsta í Evrópu, var vígð á laugardag í litlu pólsku þorpi. Styttan er 56 metra há. Bæjaryfirvöld vonast til þess að minnisvarðinn verði mikilvægur pílagrímastaður og ferðamannastaður. Útsýnispallur er byggður inn í stall styttunnar.
Hundruð manna tóku þátt í vígslu minnisvarðans sem gnæfir 55,6 metra yfir Konotopie í miðhluta Póllands, en þorpið telur færri en 150 íbúa. Styttan er hærri en Kristsstyttan í Rio de Janeiro í Brasilíu, sem er 38 metrar á hæð með stalli. Styttan er einnig hærri en sams konar stytta af Kristi í vesturhluta bæjarins Świebodzin, sem var afhjúpuð árið 2010 og er 52,5 metrar á hæð með haugnum sem hún stendur á. Mikill fjöldi fylgdist með afhjúpuninni. Vísir/EPA Til er hærri stytta af Maríu mey á Filippseyjum, sem er 98 metrar á hæð, en sú nýja í Póllandi er talin vera sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Meðal þeirra sem fylgdust með afhjúpuninni var Lech Wałęsa, fyrrverandi forseti Póllands en hann hlautfriðarverðlaun Nóbels fyrir forystu sína í pólsku andspyrnuhreyfingunni gegn kommúnisma sem formaður verkalýðsfélagsins Samstöðu. „Þetta er endirinn á minni vegferð,“ er haft eftir Wałęsa í frétt Guardian um málið og að hann hafi á fundinum gefið í skyn að þeim málum sem hann hefði lengi barist fyrir, þar á meðal lýðræði og kaþólskri trú, væri nú lokið. „Ég byrjaði með Maríu mey og ég enda með Maríu mey.“ Lech Walesa fylgdist líka með. Vísir/EPA Í frétt Guardian kemur einnig fram að flestir Pólverjar telji sig kaþólska en að áhrif trúarbragða í opinberu lífi hafi smám saman minnkað á undanförnum árum, sérstaklega meðal yngra fólks og í þéttbýli. Kaþólska kirkjan er þó enn áhrifamikil, sérstaklega í dreifbýli og meðal eldri kynslóða. Styttan var pöntuð af Roman Karkosik, efnuðum pólskum kaupsýslumanni, og eiginkonu hans, Grażynu. Hjónin búa í lítilli höll nokkrum kílómetrum frá Konotopie. Haft er eftir þeim á vef Guardian að hjónin hafa sagt að minnisvarðinn sé tjáning á þakklæti þeirra til Guðs. „Styttan verður fyrir allt fólk,“ sagði Grażyna Karkosik. „Hvert okkar sem kemur til að sjá hana mun hugsa dýpra um eigið líf, ekki bara um Guð.“
Pólland Styttur og útilistaverk Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Sjá meira