Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Freyja Þórisdóttir skrifar 16. ágúst 2026 18:14 Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins kemur fram að stór hluti íbúa grísku eyjunnar Salamis sé eldri borgarar en alls búa 30 þúsund manns á eyjunni. AP Tveir létust og mörg hundruð manns voru flutt á brott af grísku eyjunni Salamis sem er nærri höfuðborginni Aþenu en tveir gróðureldar kviknuðu „nánast samtímis“ eða um klukkan 14:40 á staðartíma og svo tuttugu mínútum seinna. Fyrri eldurinn kviknaði á suðurströnd eyjunnar og að sögn slökkviliðsyfirvalda í Grikklandi breiddist hann gríðarlega hratt út vegna hvassviðris. Gróðureldar hafa geisað víða um álfuna í sumar og hafa stærstu eldar í manna minnum herjað á íbúa Belgíu og Króatíu síðustu daga. Að minnsta kosti einn hefur látið lífið í því síðarnefnda og tugir slösuðust í gróðureldi sem geisaði meðfram strandlengju landsins aðfaranótt föstudags. Fundu tvö lík í brunarústum Hátt í fjögurhundruð manns hafa þurft að flýja eyjuna Salamis sem er rétt vestur af Aþenu og þar búa um 37.000 manns, margir þeirra eldri borgarar. Hefur breska ríkisútvarpið (BBC) eftir staðarmiðlum að fimm varðbátar hafi verið sendir á svæðið og sem og nokkrir einkabátar séu til taks til aðstoðar. Einnig hafi flugvélar og fimmtíu slökkviliðsbílar verið sendir á vettvang. Fjórir hafa verið fluttir á heilsugæslustöð með brunasár er fram kemur í frétt BBC um málið en þar kemur einnig fram að viðbragðsaðilar hafi fundið tvö lík í brunarústum er þeir hófu að reyna að slökkva eldana. Mörg hundruð slökkviliðsmenn hafa unnið hörðum höndum að því í dag að koma í veg fyrir að eldarnir tveir á eyjunni Salamis breiðist út og renni saman í einn gríðarstórann eld en síðari eldurinn kviknaði austarlega á eyjunni. Ert þú eða þekkir þú einhvern sem er á svæði þar sem gróðureldar geisa? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is. Gróðureldar Grikkland Belgía Króatía Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira
Gróðureldar hafa geisað víða um álfuna í sumar og hafa stærstu eldar í manna minnum herjað á íbúa Belgíu og Króatíu síðustu daga. Að minnsta kosti einn hefur látið lífið í því síðarnefnda og tugir slösuðust í gróðureldi sem geisaði meðfram strandlengju landsins aðfaranótt föstudags. Fundu tvö lík í brunarústum Hátt í fjögurhundruð manns hafa þurft að flýja eyjuna Salamis sem er rétt vestur af Aþenu og þar búa um 37.000 manns, margir þeirra eldri borgarar. Hefur breska ríkisútvarpið (BBC) eftir staðarmiðlum að fimm varðbátar hafi verið sendir á svæðið og sem og nokkrir einkabátar séu til taks til aðstoðar. Einnig hafi flugvélar og fimmtíu slökkviliðsbílar verið sendir á vettvang. Fjórir hafa verið fluttir á heilsugæslustöð með brunasár er fram kemur í frétt BBC um málið en þar kemur einnig fram að viðbragðsaðilar hafi fundið tvö lík í brunarústum er þeir hófu að reyna að slökkva eldana. Mörg hundruð slökkviliðsmenn hafa unnið hörðum höndum að því í dag að koma í veg fyrir að eldarnir tveir á eyjunni Salamis breiðist út og renni saman í einn gríðarstórann eld en síðari eldurinn kviknaði austarlega á eyjunni. Ert þú eða þekkir þú einhvern sem er á svæði þar sem gróðureldar geisa? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is.
Ert þú eða þekkir þú einhvern sem er á svæði þar sem gróðureldar geisa? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is.
Gróðureldar Grikkland Belgía Króatía Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira