Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Beautybox 12. ágúst 2026 09:10 Listaverk eftir Sögu Sig er meðal þess sem viðskiptavinir Beautybox geta unnið á afmælisviku verslunarinnar sem stendur nú sem hæst. Mynd eftir Sögu Sig. Saga Sig „Við höldum afmælisvikuna alltaf heilaga og reynum að gera eitthvað extra skemmtilegt. Við erum ekki oft með afslátt af öllu í versluninni en þessa viku er 20% afsláttur af öllu og sérfræðingar frá vörumerkjunum til taks í búðinni. Þetta er stór vika hjá okkur og hægt að gera virkilega góð kaup,“ segir Íris Björk Reynisdóttir, eigandi Beautybox en verslunin fagnar nú níu ára afmæli.
Fjölbreytt tilboð og skemmtilegir kaupaukar eru í boði alla vikuna , bæði í versluninni í Síðumúla 22 og á beautybox.is, auk þess sem viðskiptavinir geta unnið spennandi vinninga. Listaverk málað með förðunarvörum Íris Björk Reynisdóttir einn eigenda BeautyboxKári Sverris „Við erum á hverju ári í samstarfi við íslenska listamenn og í ár geta þau sem versla í afmælisvikunni unnið verk eftir Sögu Sig. Verkið er úr nýjustu sýningu hennar, Ruby Woo, en þar notar Saga förðunarvörur við listsköpunina. Hún gerir líka teikningar sérstaklega fyrir afmælisvikuna okkar,“ segir Íris. Einnig verða fleiri vinningar í boði á meðan á afmælisvikunni stendur, þar á meðal einkakennsla í förðun hjá Beautybox. Mynd eftir Sögu Sig sem unnin er með förðunarvörum.Saga Sig Fjölbreytt úrval þekktra vörumerkja Í Beautybox fæst breitt úrval af þekktum snyrti-, húð- og hárvörumerkjum. Þar má meðal annars nefna Sensai, Estée Lauder, La Mer, Sisley Paris, Dr. Dennis Gross, Bioderma, Balmain Hair, Medik8 og COSRX. Einnig fást þar vinsælu StylePro-snyrtigræjurnar. Íris segir Beautybox leggja mikla áherslu á faglega þjónustu og traustar vörur en umræða hefur verið um „gráa markaðinn“. Mikilvægt að vita hvaðan varan kemur „Það eru strangar reglur í snyrtivöruheiminum og söluaðilar þurfa að fylgja þeim. Við þurfum að uppfylla ákveðna staðla áður en við fáum leyfi til að selja tiltekin merki og þess vegna eru heildsölur til. Þær passa að reglum sé fylgt. Við kaupum vörurnar frá íslenskum heildsölum. Nokkur merki kaupum við erlendis frá en þá kaupum við beint af framleiðandanum. Til dæmis kemur Sisley beint frá París og Dr. Dennis kemur frá umboðsaðila þess á Norðurlöndunum. Við pössum að allar leiðir séu réttar og tökum ekki þátt í gráa markaðnum,“ segir Íris. „Það skiptir okkur miklu máli að vita hvaðan vörurnar koma, hvernig þær hafa verið geymdar og hver ber ábyrgð á þeim,“ bætir hún við og bendir á að á gráa markaðnum er uppruni, geymsluaðstæður og aldur vara ekki alltaf ljós. Vörurnar geta hafa legið lengi í vöruhúsi eða gámi, jafnvel við óheppilegt hitastig, og einnig geta falsaðar vörur ratað í sölu. Íris segir skiljanlegt að neytendur leiti að góðu verði en mikilvægt sé að þeir séu meðvitaðir um áhættuna. Fjölskyldufyrirtæki sem óx hratt Söluaðilar frá heildsölum og starfsfólk og eigendur Beautybox. Gulla, Íris (eigandi), Ugla, Sirrý, Bjargey, Gunna og Valgerður (eigandi). Beautybox er fjölskyldufyrirtæki sem hóf reksturinn í einu herbergi. Fyrsta verslunin var opnuð við Langholtsveg í janúar árið 2020, skömmu áður en heimsfaraldurinn skall á. „Við þurftum því að loka henni eftir mánuð og fluttum verslunina á netið. Salan fimmfaldaðist á einu ári en netverslun óx gríðarlega í faraldrinum. Við sprengdum utan af okkur húsnæðið og fluttum í Síðumúlann og höfum verið hér síðustu fimm ár. Þetta hefur verið ótrúlega gaman. Við tökum vel á móti öllum og hlökkum til að sjá sem flesta á afmælisvikunni,“ segir Íris. Afmælistilboðin, kaupaukarnir og vinningarnir gilda bæði í verslun Beautybox í Síðumúla 22 og á Beautybox.is.
Hár og förðun Tíska og hönnun Heilsa Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira