Sport

Banda­rískur meistari dæmdur í þriggja ára bann fyrir lyfjasvindl

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jonah Koech eftir sigur sinn í 1.500 metra hlaupi á Demantamótaröðinni í Rabat í Marokkó í fyrra.
Jonah Koech eftir sigur sinn í 1.500 metra hlaupi á Demantamótaröðinni í Rabat í Marokkó í fyrra. epa/JALAL MORCHIDI

Jonah Koech, bandarískur meistari í 1.500 metra hlaupi, hefur verið úrskurðaður í þriggja ára keppnisbann eftir að hafa gengist við því að hafa brotið lyfjareglur.

Samkvæmt bandaríska lyfjaeftirlitinu (USADA) komst svindl Koechs upp eftir að mjög óvenjuleg blóðgildi sáust í líffræðilegu vegabréfi hans. 

Þar er fylgst með blóðgildum íþróttamanns yfir ákveðinn tíma til að greina merki um lyfjamisferli, jafnvel þótt viðkomandi hafi ekki fallið á lyfjaprófi.

Í fyrra varð Koech bandarískur meistari í 1.500 metra hlaupi. Hann hefur nú verið sviptur þeim titli sem og öllum titlum sem hann vann frá 30. júlí 2025 og síðar. Það er dagsetning fyrsta óeðlilega blóðsýnis hans.

Koech er á leið í þriggja ára bann og má ekki snúa aftur til keppni fyrr en í júlí 2029.

Blóðsýnin úr Koech voru tekin fyrir og eftir bandaríska meistaramótið utanhúss síðasta sumar. Á mótinu í fyrra varð Koech hlutskarpastur í 1.500 metra hlaupi. Þar hafði hann meðal annars betur gegn Ólympíumeistaranum í greininni, Cole Hocker.

Koech er fæddur í Kenía en fluttist til Bandaríkjanna til að fara í háskóla. Hann fékk bandarískan ríkisborgararétt 2019 og hefur keppt fyrir hönd Bandaríkjanna á alþjóðlegum mótum síðan 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×