Lífið

Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Kærustuparið Arna Magnea Danks og Magdalena Lukakiak tóku þátt í gleðigöngunni á mótorhjóli á laugardaginn og svo lenti Arna í slysi á mótorhjólinu daginn eftir.
Kærustuparið Arna Magnea Danks og Magdalena Lukakiak tóku þátt í gleðigöngunni á mótorhjóli á laugardaginn og svo lenti Arna í slysi á mótorhjólinu daginn eftir. Aðsend/Vísir/Viktor

Áhættuleikkonan Arna Magnea Danks lenti í mótorhjólaslysi á sunnudaginn, fótbrotnaði illa og þarf að fara í tvær aðgerðir. Hún var á mótorhjólinu í gleðigöngunni á laugardaginn og var á leið með það í bílskúr þegar hún lenti í slysi á Sæbrautinni.

Arna greindi frá slysinu með myndbandi á samfélagsmiðlum í gær. Í myndbandinu liggur hún á sjúkrarúmi á Landspítalanum með kærustu sína, Magdalenu Lukasiak, sér við hlið.

„Okkur þykir leitt að vera ekki í Trans kirkjunni í dag því okkur langaði virkilega að vera þar og styðja við okkar frábæra samfélag, alveg eins og það styður okkur. Síðbúin hinseginkveðja, gærdagurinn var æðislegur en í dag var ég að keyra græna hjólinu aftur í bílskúrinn og lenti í slysi,“ sagði Arna í myndbandinu.

„Ég braut illa á mér fótlegginn, vinstri fótlegginn, þannig ég þarf að fara í aðgerð. Ég fer í tvær aðgerðir, fyrst núna eftir tæpan klukkutíma og svo aðra eftir nokkrar vikur. En við tvær sendum miklum ást héðan frá spítalanum. Og ég vil segja að starfsfólkið hér á Landspítalanum er allt æðislegt,“ sagði hún.

Magdalena þakkaði síðan starfsfólki Landspítalans enn og aftur og sömuleiðis fjölskyldu þess sem lenti í slysinu með Örnu. Magdalena deildi síðan myndbandi Örnu á sinni síðu og þakkaði þar aftur fyrir.

„Hinsegin stríðsdrottningin mín. Takk allir sem stoppuðu á Sæbrautinni. Fólkið sem gaf mér belti til að stoppa blæðinguna, fólkið sem sá um son minn á vettvangi og lögregla og slökkviliðsmenn,“ skrifaði hún við deilinguna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.