Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. ágúst 2026 11:01 Söngvamyndin Sálin hans Jóns mín kemur í bíóhús í september. Söngvamyndin Hvar er draumurinn? byggir á lögum Sálarinnar hans Jóns míns, er nostalgísk sumarsaga um fyrstu ástina og það að fullorðnast og kemur í bíóhús í byrjun september. Engir styrkir fengust í verkefnið sem er drifið áfram af ungu og metnaðarfullu kvikmyndagerðarfólki.
Höfundur, leikstjóri og framleiðandi myndarinnar er Höskuldur Þór Jónsson. Hvar er draumurinn? er fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd en hann hefur áður starfað sem leikari og dansari og leikstýrði söngleiknum Með allt á hreinu sem var sýndur fyrir fullu húsi í Háskólabíói í sumar. Verkefnið er drifið áfram af ungu og upprennandi listafólki og á meðal leikara eru Mikael Kaaber, Sigríður Ragnarsdóttir, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Mímir Bjarki Pálmason, Kolbeinn Sveinsson, Ingi Þór Þórhallsson, Hrafnhildur Ingadóttir og Salka Sól Eyfeld. Fyrsta stiklan fyrir kvikmyndina er komin út en hana má sjá hér á Vísi: Af hverju Sálin hans Jóns míns? „Sálin hans Jóns míns er ein ástsælasta og áhrifamesta hljómsveit Íslands og hefur verið stór hluti af íslensku tónlistarlífi í áratugi. Tónlistin og textarnir eru einstaklega fjölbreyttir – þar má finna gleði, húmor, rómantík og dramatík – sem hentar mjög vel sem grunnur að slíku verkefni. Auk þess er þetta tónlist sem margar kynslóðir þekkja og eiga sterkar minningar tengdar við hana,“ segir Höskuldur. Hvað hefur verkefnið verið lengi í bígerð? „Hvar er draumurinn? var upphaflega sviðsett í Verzlunarskóla Íslands þar sem ég skrifaði og leikstýrði söngleik byggðum á lögum Sálarinnar hans Jóns míns. Viðtökurnar voru það góðar að ákveðið var að þróa verkefnið áfram og aðlaga það að kvikmynd í fullri lengd,“ segir hann. „Í kjölfarið tók við handritsvinna og undirbúningur áður en ráðist var í tökur síðasta sumar og haust. Nú er eftirvinnslan á lokametrunum og stefnt er að frumsýningu 3. september,“ segir Höskuldur. Hvert sækir myndin innblástur? „Við sækjum klárlega innblástur í myndir á borð við Með allt á hreinu og Sódómu Reykjavík, en einnig í klassískar tónlistarmyndir eins og Grease, þar sem söngurinn og tónlistin er órjúfanlegur hluti af frásögninni,“ segir Höskuldur um innnblásturinn. Hvernig gengu tökur? „Tökur á kvikmyndinni gengur vonum framar, líka í ljósi þess að engir styrkir fengust í verkefnið. Þetta endaði í 25 tökudögum og tökur hófust í júlí og kláruðust um haustið. Þetta er algjört ástríðuverkefni þar sem ungt og upprennandi fólk hefur drifið verkefnið áfram af miklum metnaði og ástríðu,“ segir hann. „Það er ekki á hverjum degi sem stór hópur ungs fólks kemur saman yfir heilt sumar til að búa til bíómynd.“
Bíó og sjónvarp Tónlist Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Jólabylgjan komin í loftið Jól Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Fleiri fréttir Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sjá meira