Áhrifavaldur myrtur í beinni Samúel Karl Ólason skrifar 6. ágúst 2026 11:36 César Gastélum var með tveimur öðrum að gantast fyrir utan KFC í Culiacán þegar menn keyrðu upp að þeim á mótorhjóli og skaut annar þeirra áhrifavaldinn. AP/Aaron Ibarra og skjáskot Mexíkóskur áhrifavaldur var í vikunni myrtur í beinni útsendingu. Morðið varpar enn ljósi á ofbeldið í Mexíkó og skipulagða glæpastarfsemi, sem hefur teygt anga sína til áhrifavalda þar í landi. Talið er að morðið tengist áhrifamiklum glæpasamtökum.
César Gastélum var ásamt tveimur öðrum að streyma frá því þegar þeir voru að afhenda fólki matarpantanir á þriðjudaginn. Mennirnir þrír stóðu fyrir utan KFC í borginni Culiacan í Sinaloa-héraði í Mexíkó. Þá komu tveir menn akandi að þeim á mótorhjóli en annar þeirra dró upp byssu og skaut áhrifavaldinn í höfuðið. Yfirvöld segja málið til rannsóknar en bent hefur verið á að Gastélum, sem þótti tiltölulega vinsæll áhrifavaldur, hafi birt myndbönd sem gáfu til kynna að hann tengist ónefndum glæpasamtökum. Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, er meðal þeirra sem hafa tjáð sig um morðið en hún sagði á blaðamannafundi í gær að nauðsynlegt væri að hafa hendur í hári morðingjanna og komast að því af hverju þeir myrtu Gastélum. Umfangsmikil átök um árabil Sinaloa-hérað hefur á undanförnum árum verið vettvangur umfangsmikilla og grimmilegra átaka tveggja fylkinga um stjórn Sinaloa-samtakanna svokölluðu. Fylkingar þessar kallast annars vegar „Los Chapitos“ og hins vegar „Los Mayos“. Fyrri hópnum hefur verið stýrt af sonum hins víðfræga Joaquín Guzmán eða „El Chapo“. Síðarnefnda fylkingin er svo leidd af Mayito Flaco, syni Ismael Zambada eða „El Mayo“. El Chapo og El Mayo komu báðir að því að stofna Sinaloa-samtökin á árum áður og tóku fulla stjórn á þeim í miklum átökum árið 2008. Samtökin eru mjög umsvifamikil og hafa staðið í mikilli fíkniefnasölu um allan heim um árabil. Bæði El Chap og El Mayo sitja nú í fangelsi í Bandaríkjunum og hafa synir þeirra barist um yfirráð yfir samtökunum með blóðugum afleiðingum fyrir íbúa Mexíkó. Hundruð liggja í valnum eða hafa horfið. Átökin hafa komið niður á völdum Sinaloa-samtakanna og hafa samtökin Jalisco New Generation Cartel eða JNGC (stundum CJNG) tekið fram úr þeim hvað varðar umsvif og áhrif. Áhrifavaldar í hættu AP fréttaveitan segir að þegar átökin um stjórn Sinaloa-samtakanna stóðu hvað hæst hafi lík verið skilin eftir víða um Culiacán með táknum fylkinganna. Los Chapitos skildu gjarnan eftir pítsur eða pítsakassa á líkum fórnarlamba sinna og Los Mayos skildu eftir Mexíkanahatta á líkum fórnarlamba sinna. Þetta leiddi til þess að það taldist hættulegt að bera slíka hatta í Culiacán þar sem það gat verið tekið sem yfirlýsing um hollustu við aðra fylkinguna. Gastélum sást bera Mexíkanahatt fyrr á þriðjudagskvöldið, áður en hann var skotinn. Gastélum er ekki fyrsti áhrifavaldurinn í Mexíkó sem er myrtur í beinni útsendingu. Meðlimir glæpasamtaka hafa að undanförnu myrt sífellt fleiri áhrifavalda en í samtali við AP segir sérfræðingur í málefnum glæpasamtaka í Mexíkó að í mörgum tilfellum tengist viðkomandi áhrifavaldar ákveðnum samtökum. Meðal annars hafi þeir framleitt og birt efni fyrir samtökin eða átt í sambandi við meðlimi þeirra. Þá hafi áhrifavaldar einnig þvættað fé fyrir glæpasamtök eða jafnvel opinberað upplýsingar um þau í óþökk leiðtoga þeirra.
Mexíkó Erlend sakamál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira