Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. ágúst 2026 12:00 Lögreglan hefur gert sitt til að stemma stigu við innbrotahrinunni. Vísir/Ívar Fannar Yfirfullir fangaklefar hafa reynst lögreglu fjötur um fót í baráttunni gegn innbrotahrinu í miðbæ Reykjavíkur þar sem ekki hefur verið hægt að vista grunaða í fangageymslum. Lögreglufulltrúi segir lögreglu þó farna að sjá til lands en enn sé tilefni fyrir fólk að gæta vel að heimilum sínum.
Greint hefur verið frá innbrotahrinu í miðborginni undanfarnar vikur, síðast var greint frá innbroti í heimahús á þriðjudag þar sem nágrannar yfirbuguðu þjóf sem reyndi að brjótast inn í mannlausa íbúð og þar áður frá innbroti síðustu helgi. Íbúasamtök í miðbænum hafa lýst yfir áhyggjum vegna málsins og borgin tilkynnt að til skoðunar sé að efla öryggismyndavélakerfi. Samkvæmt lögreglu er ekki um skipulagða glæpastarfsemi að ræða heldur tilviljunarkennd brot. Þannig hefur lögregla greint frá því að yfirfullir fangaklefar hafi sett strik í reikninginn. Guðmundur Ásgeirsson lögreglufulltrúi segir það eðli málsins samkvæmt hafa áhrif á störf lögreglu. „Þetta hefur náttúrulega bara þau áhrif að það er meira um að vera hjá okkur þegar þessir einstaklingar fá að leika lausum hala, þá erum við með nokkuð mikið af mannskap í mikilli vinnu, því miður en þegar við náum aðeins utan um þetta og komum þessu fólki úr umferð þá líður okkur betur og það hægist um.“ Þrír einstaklingar sem handteknir voru í lok júlí eru enn í síbrotagæslu í tengslum við innbrotin og segir Guðmundur lögreglu gera sitt til að bregðast við stöðunni þó nýting fangaklefa hafi verið mikil síðustu vikur. „Hún er bara að mörgu leyti mjög svipuð en við höfum samt verið að fá eitt og eitt pláss sem hefur hjálpað okkur og það hefur gert það að verkum að við höfum náð að taka einn til tvö úr umferð í síðasta mánuði og svo aftur núna.“ Hefurðu einhverjar tölur hvað varðar innbrot hjá ykkur núna, eins og í miðborg Reykjavíkur, er þetta svipaður fjöldi í þessari viku og í síðustu, hvernig er staðan? „Ég er ekki með neina tölu á takteinum en mín tilfinning er að það hafi aðeins hægst á þessu, þannig við virðumst vera að ná meira utan um þetta en ég vil líka bara ítreka það við fólk að tryggja heimili sín vel.“ Lögregla hefur ítrekað að ekki sé um hættulega einstaklinga að ræða. Brotin séu eins og áður segir tilviljanakennd. „Við vitum náttúrulega bara að flestir þessir einstaklingar eru bara sjálfstæðir í sinni vinnu og eru að fjármagna sína eigin neyslu sem er örugglega mjög dýr. Ég bara segi enn og aftur, ég brýni bara fyrir fólki að tryggja heimili sín vel og vandlega þegar þau fara að heiman, loka gluggum og læsa á eftir sér og og já, myndavélar hafa hjálpað okkur mikið. Þegar við erum með myndir þá getum við borið kennsl á þetta fólk.“
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Pútín sló öll met Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Fleiri fréttir Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Sjá meira