Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Freyja Þórisdóttir skrifar 5. ágúst 2026 10:43 Piers Morgan kom Ariana Grande til varnar á dögunum en hún og teymið hennar hafa sætt gríðarlegri gagnrýni undanfarið. Getty Piers Morgan hefur lagt orð í belg eftir að tilkynnt var að leik- og söngkonan Ariana Grande ætli að draga sig úr sviðsljósinu frá og með 1. september næstkomandi. Hann kom henni til varnar á dögunum og biðlaði til fólks að láta það vera að setja út á útlit hennar og gefa henni andrými til þess að ná áttum. „
Ég hef ekki hugmynd um hvað er í gangi hjá @arianagrande,“ eru upphafsorð Instagram-færslu sem Piers Morgan, fjölmiðlamaður og fyrrverandi þáttastjórnendi Good Morning Britain. Piers Morgan og Ariana Grande eyddu saman kvöldstund á veitingastað í Beverly Hills fyrir nokkrum árum.Instagram/Piers Morgan Hann segist þó vita að hún sé frábær manneskja, vel gefin, fyndin, heillandi og afburðahæfileikarík. Þetta hafi hann lært eftir að hafa varið með henni kvöldstund á veitingastað í Beverly Hills í Kaliforníu, fyrir einskæra tilviljun að hans sögn. „Frægð á þessu kalíberi getur verið mjög erfiður og einmanalegur staður,“ segir í færslunni. „Þess vegna hvet ég öll nettröllin sem eru að gera henni lífið leitt með þessu stöðuga nöldri um útlit hennar til að láta hana í friði og gefa henni það svigrúm sem hún þarf til að ná áttum,“ skrifaði Piers Morgan í niðurlagi samfélagsmiðlafærslunnar. Hafi skaðleg áhrif á unga aðdáendur Greint var frá því á dögunum að bandaríska söng- og leikkonan ætli að draga sig úr sviðsljósinu eftir að yfirstandandi tónleikaferðalagi hennar lýkur þann 1. september. Hún er orðin áberandi grönn og hafa áhyggjuraddir verið áberandi en leikkonan Jameela Jamil hefur sett út á að teymið hennar ýti undir þetta nýja útlit meðal annars með aðsniðnum og flegnum klæðaburði. Þá nefnir hún mikilvægi þess að fólk sem njóti slíkrar athygli, en Grande er sem stendur með ríflega 360 milljón fylgjendur á Instagram, reyni eftir fremsta megni að hafa jákvæð áhrif á aðdáendur sína. Það að gera lítið úr áberandi þyngdartapi Grande sé hún sjálf og teymið hennar að hafa skaðleg áhrif á líkamsímynd ungra kvenna um allan heim.
Bandaríkin Heilsa Samfélagsmiðlar Bretland Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Í kossaflensi á listasýningu Lífið Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira