Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir skrifar 5. ágúst 2026 07:31 Hinsegin dagar í Reykjavík hófust í gær en síðan 1999 hefur Gleðigangan verið einn fjölsóttasti og flottasti viðburður í borginni ár hvert - og blessunarlega alla tíð staðið undir nafni. Gleðigangan er líka kröfuganga sem minnir okkur á hvernig samfélag við höfum byggt upp og viljum halda áfram að byggja upp. Við viljum Reykjavík þar sem fólk er frjálst og tilheyrir. Frjálst til að vera einsog það er og frjálst til að elska fólkið sem það elskar. Samfélag sem áttar sig á því að fjölbreytileiki mannflórunnar er óendanlegur og veit að einmitt í fjölbreytninni búa okkar mestu styrkleikar. Samfélag sem fagnar öllum litunum og býður þá velkomna. Enda væri þessi heimur leiðinlegt pleis ef allir væru eins. Öfl sem vilja þagga niður fjölbreyttar raddir Síðustu ár og misseri höfum við verið minnt harkalega á að þessi gildi eru ekki sjálfsögð. Það eru öfl, bæði hér heima og úti í heimi, sem vilja og bókstaflega vinna í því að grafa undan þessu frjálslynda samfélagi sem við höfum skapað. Það er kaldhæðnislegt að Gleðigangan, viðburður sem bókstaflega kennir sig við gleði og stolt; kalli á þau sterku viðbrögð hjá einhverjum að vilja helst þagga niður fjölbreyttu raddirnar og krassa yfir skærustu liti regnbogans. Barátta fyrir mannréttindum heldur áfram Það er ömurlegt og óhuggulegt að á síðustu árum hafi andúð í garð hinsegin samfélagsins vaxið með tilheyrandi fordómum, mannfyrirlitningu og skelfilegri orðræðu í kommentakerfum. Einhvern veginn reiknar maður með því að við verðum víðsýnni og umburðarlyndari með meiri þekkingu og aðgangi að upplýsingum. En staðreyndin er samt sú að árið er 2026 og fordómar gagnvart hinsegin samfélaginu eru því miður með comeback. Þetta er áminning um það að sagan er hvorki rökrétt né línuleg – heldur fer hún í hringi - og baráttan fyrir því að tryggja að mannréttindi sem hinsegin samfélagið og fleiri hafa barist fyrir, standi óhögguð um aldur og ævi, heldur áfram. Samstaðan heldur landinu saman Ísland er magnað land. Pínulítið samfélag á litlum kletti í Norður-Atlantshafi. Samfélagið hér hefur gengið upp afþví að fólk hefur blessunarlega áttað sig á því að það er betra að standa saman og virða hvort annað. Við höfum búið til gott net velferðar sem grípur þau okkar sem detta og hjálpar aftur upp. Sameiginlegu kerfin okkar mennta okkur og lækna, kynslóðir hafa hjálpast að við að byggja og kaupa húsnæði, leggja raflínur yfir landið - sjálfboðaliðahreyfingar, kvenfélög, íþróttafélög, björgunarsveitir og jafnvel áheitasöfnun í Reykjavíkurmaraþoninu eru til marks um þann kraft sem verður til þegar allir leggja í púkkið fyrir betra samfélag. Samstaðan er það sem heldur Íslandi saman. Þegar þér gengur vel, gengur mér vel Við erum öll nátengd. Hagsmunir Reykvíkinga eru samofnir og hagsmunir allra Íslendinga eru samofnir. Þegar færri okkar glíma við andleg mein, útskúfun, kvíða, þunglyndi og jaðarsetningu gengur samfélaginu í heild betur. Þegar mér eða þér gengur vel, þá gengur samfélaginu vel. Í þessu ljósi er í besta falli furðulegt að hér sé ákveðinn hópur – sem betur fer lítill - sem hefur það á dagskrá að hnýta stöðugt í hinsegin samfélagið. Hvort sem er með því að æla gegnum lyklaborðið á samfélagsmiðla eða í skjóli nætur með málningardollur í Grafarvogi og víðar um landið. Borgin leggur mikið af mörkum Reykjavík er frjáls og ég er svo stolt yfir því að búa í litríkri borg þar sem börn, ungmenni og fólk á öllum aldri fær að vera einsog það er. Borgin leggur sannarlega sitt af mörkum til þess að samfélagið hér sé áfram þannig með; Hinsegin félagsmiðstöð, hinsegin fræðslu í skólum borgarinnar, flaggskipinu Hinsegin dögum og regnbogavottuninni en nú hafa 149 starfsstaðir borgarinnar fengið vottun. Allt eru þetta mikilvæg verkefni sem starfsfólk borgarinnar sinnir daglega og mun gera áfram. Ímyndunarveikir lyklaborðsriddarar Fyrr í sumar gerði meirihlutinn í borginni skipulagsbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Breytingarnar snerust um að færa ákveðin verkefni nær notendum þjónustunnar og á móti minnka miðlægt kerfi. Lyklaborðsriddarar voru ekki lengi að setja þessar breytingar í sitt eigið ímyndaða samhengi og fögnuðu ákaft að nýr meirihluti ætlaði loksins að hætta með þessi „hinsegin mál og mannréttindadót.“Það hlakkaði líka vel í kommentakerfinu yfir því að Regnbogafáninn yrði ekki aftur dreginn að húni við Ráðhúsið í Reykjavík. Gífuryrði, vitleysisgangur og hatur í bland við glaðhlakkalegar yfirlýsingar náðu slíkum hæðum að það virtist næstum því óyfirstíganlegt að leiðrétta bullið og koma staðreyndum á framfæri. Stöndum með hinsegin samfélaginu og mannréttindum Nú þegar Hinsegin dagar ganga í garð er gott að koma því á framfæri að með breytingunum erum við ekki að hætta með verkefni sem tengjast hinseginmálum eða mannréttindum, heldur voru ákveðin verkefni færð til innan kerfisins með það fyrir augum að einfalda kerfið og auka slagkraft teyma sem starfa nær Reykvíkingum. Komi það í ljós að nýtt fyrirkomulag sé á einhvern hátt verra þarf að eiga hreinskiptið samtal um það og finna lausnir. En höfum það alveg á hreinu að meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur stendur með hinsegin samfélaginu og stendur með mannréttindum. Reykjavíkurborg er og verður áfram mannréttindaborg þar sem við fögnum fjölbreytileikanum. Regnbogafáninn við Ráðhúsið Nú blaktir Regnbogafáninn við Ráðhúsið og mun vera þar og um alla borg á Hinsegin dögum hér eftir sem hingað til. Fáninn er tákn um sýnileika allra litanna, mannréttindi og áminning um það dýrmæta samfélag sem við eigum og viljum standa vörð um - samfélag þar sem fólk hefur frelsi til að blómstra á eigin forsendum og vera einsog það er. Í þannig borg gengur okkur öllum betur. Góða skemmtun á Hinsegin dögum! Höfundur er oddviti Viðreisnar í borginni og forseti borgarstjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Magnúsdóttir Reykjavík Gleðigangan Hinsegin Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Skoðun Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar