RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar 1. ágúst 2026 15:31 Við Austfirðingar höfum heldur betur fengið að kenna á Reykjavíkurvaldinu (RKV) í gegnum tíðina vegna áhrifa þess á Alþingi Íslendinga. Rödd Austurlands heyrist í ræðustól Alþingis, en fjarar jafnskjótt út og bergmál ræðumanns hættir að hljóma í salnum. Þeir Reykjavíkurþingmennirnir sem sitji í salnum láta slíkt „fjas“ sem vind um eyru þjóta. Stór hluti þingheims virðist fyrirmunað að átta sig á því hvernig Ísland lítur út á korti og þaðan af síður virðast þeir vita að vitsmunalíf þróist á landsbyggðinni í einhverri mynd. Það er hins vegar illskiljanlegt af þeirri ástæðu, að löngum hafa margir Reykjavíkurþingmenn áttað sig á því að þangað má sækja fjármuni til að efla kerfisvæðinguna í Reykjavík og stækka þar báknið. Hópar einstaklinga utan þings hafa einnig staðið í þeirri trú, að enn betur mætti kreista fé úr Austurlandsfjórðungi og þannig bregðast við því andófi, sem gerir vart við sig þegar Austfirðingum blöskrar ítrekuð svik Alþingis við Austurlandsfjórðung. Þar er af nægu að taka í uppsöfnuðu svikasafni Alþingis og í því samhengi er rétt nefna Fjarðarheiðargöng, Öxi, Egilsstaðaflugvöll og ónýtar brýr á Hringvegi eitt á Austurlandi. Reykvíkingum er tamt að fara í djúpa umræðu um að jafna atkvæðavægið til Alþingis. Hverju hefur núverandi „mismunun“ skilað til Austurlands? Eru líkur á að við „meiri jöfnun“ yrði aukið tillit tekið til þeirra fjögurra prósenta landsmanna, sem standa undir um 24% útflutningsverðmæta landsins? Er líklegt að rödd landsbyggðarinnar fái meira vægi á Alþingi? Rétt er að benda á að þrátt fyrir stuttar boðleiðir á Íslandi, er leiðin löng að mörkum rökhyggjunnar og enn lengri að réttlætinu. Þessi miðaldahugsun er á pari við nýlenduhugsjónina, sem var við lýði á tímum seglskipanna. Við búum við Reykjavíkurmódel, sem er smækkuð mynd af ESB-alræðinu. Þar hefur embættismannakerfið tögl og hagldir til að þenjast út, það lýsir sér með því að kafa sífellt dýpra í vasa skattborganna. Hagræðing er ekki til í orðabók þessara kerfa. Trúir þú virkilega að lengri boðleiðir auðveldi samskipti og lausnir? Trúir þú að það verði auðveldara að ná einhverri rökrænni tengingu við ráðamenn hjá ESB? Veist þú að þetta fólk heldur í alvöru að strætó og lestir tengi saman Ísland og Evrópu og það telur að hægt sé að flytja fólk og vörur þar á milli eins og á milli Þýskalands og Frakklands. Með það að markmiði var tilskipun ESB um ETS-kerfið (mengunarskattur) m.a. sett á til að færa flutninga á rafvædd samgöngukerfi og það innleitt hugsunarlaust í íslensk lög árið 2007. Flugrekstur var tekinn inn í ETS-kerfið árið 2012, staðbundinn iðnaður (ál og járnblendi) árið 2013 og sjóflutningar árið 2024. Þessar álögur hækka öll aðföng til landsins, framleiðslu okkar úr landi og bitnar á kaupmætti landsmanna. Hvað varðar Reykjavíkurvaldið þá er „Vont þeirra ránglæti, verra þeirra réttlæti“ (Jón Hreggviðsson / H.K. Laxness) svo það hlýtur að vera öllum morgunljóst, að síst verður það skárra undir ægivaldi ESB. Þar til gervigreindin verður fær um að rétta af vanstilltan „kompás“ ESB þingsins, er rétt að Íslendingar vinni heimavinnu sína til að auka lífsgæði og njóti gæða landsins og frelsis. ESB stendur núna á brauðfótum og litlar forsendur að sækja um inngöngu. Tökum samtalið við Norðmenn og aukum slagkraftinn gagnvart ESB. Tíminn vinnur með okkur og því ástæðulaust að taka núna illa upplýsta áhættu. Hér með er skorað á alla landsmenn að kjósa NEI! í kosningunni 29. ágúst nk. Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins í NA-kjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar