Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2026 08:02 Laura Dahlmeier með gullverðlaun sín frá því á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang 2018. Getty/Michel Cottin Fyrir einu ári lést Laura Dahlmeier í fjallaklifursslysi. Í nýrri heimildarmynd koma nú fram frekari upplýsingar um andlát þessarar fyrrverandi skíðaskotfimikonu sem varð Ólympíumeistari og margfaldur heimsmeistari á glæsilegum ferli sínum.
Eftir farsælan feril í skíðaskotfimi, sem skilaði meðal annars tveimur ólympíugullum, skipti þýska íþróttakonan Laura Dahlmeier um gír árið 2019. Hún skipti yfir í ofurhlaup í fjöllum og hóf einnig að stunda fjallaklifur. Þann 28. júlí 2025 ætlaði Dahlmeier að klífa hið rúmlega sex þúsund metra háa fjall Laila Peak í Pakistan en þá varð slysið hræðilega. Í 5700 metra hæð varð Dahlmeier fyrir grjóthruni og tveimur dögum síðar fannst hún látin. Í nýrri heimildarmynd segja nú nokkrir frá þessum örlagaríka degi. „Snjóflóð, grjót og ís féllu stöðugt niður í átt að grunnbúðunum,“ sagði spænski fjallgöngumaðurinn María Martín, sem hitti Dahlmeier á fjallinu nokkrum dögum fyrir banaslysið, í heimildarmyndinni samkvæmt þýska blaðinu Bild. Martín mun hafa varað Dahlmeier við og reynt að fá hana til að snúa við. „Ég reyndi að útskýra að það væri hættulegt, ómögulegt,“ sagði Martín. Vegna erfiðra aðstæðna sem ríktu var ekki hægt að hefja björgunaraðgerðir fyrr en daginn eftir slysið. „Við íhuguðum allar mögulegar leiðir til að komast þangað, en við vissum öll að hver sá sem reyndi að komast þangað gerði það með líf sitt að veði,“ sagði björgunarmaðurinn Alan Rousseau. Laura Dahlmeier varð 31 árs. Á ferli sínum í skíðaskotfimi vann hún 15 verðlaun á HM: sjö gull, þrjú silfur og fimm brons. Á Vetrarólympíuleikunum 2018 vann hún tvö gull og ein bronsverðlaun.
Vetrarólympíuleikar 2018 í PyeongChang Skíðaíþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sjá meira