Formúla 1

For­múla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda á­fram

Andri Broddason skrifar
Tímabilið í Formúlu 1 hefur síðustu ár klárast í Abu Dhabi en ekki er víst hvort það verði hægt í ár.
Tímabilið í Formúlu 1 hefur síðustu ár klárast í Abu Dhabi en ekki er víst hvort það verði hægt í ár. Vísir/Getty

Ef átökunum mun ekki linna í Mið-Austurlöndum mun Formúla 1 ekki halda kappakstur þar á þessu tímabili. Verið er að finna lausnir ef þörf er á að færa keppnirnar sem eiga að vera nálægt átakasvæðunum til Evrópu.

Stefano Domenicali, forseti Formúlu 1, hefur staðfest að á meðan átök eru í Mið-Austurlöndunum verður ekki kappakstur þar. Síðustu tvær keppnir tímabilsins eiga að vera í Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum en verið er að skoða aðra möguleika innan Evrópu ef enn eru átök á svæðinu.

Stjórn Formúlu 1 hefur gefið sér frest til september til að taka endanlega ákvörðun um hvort tímabilið klárist á upprunalegu stöðunum eða í Evrópu. Nú í vikunni var tekin ákvörðun um að Barein-kappaksturinn, sem var frestað í byrjun tímabils vegna stríðsátaka Mið-Austurlandanna, yrði haldinn í Malasíu.

Aðrar mótaraðir í kappakstri hafa endurhugsað keppnir í Mið-Austurlöndum og hefur heimsmeistaramótið í þolakstri (e. World Endurance Championship) hætt við sínar keppnir á átakasvæðunum. Eins og staðan er núna verður keppt í bæði Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum en ef ástandið lagast ekki munu keppnirnar verða færðar til Evrópu.

Lokakeppnir tímabilsins í Formúlu 1 eiga að vera 29. nóvember og 6. desember og á þeim árstíma er virkilega kalt í Evrópu. Domenicali hefur þó engar áhyggjur af því að bílarnir þoli ekki kuldann enda hefur verið keppt í Las Vegas á þessum tíma ársins þar sem vanalega er kaldara en í Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×