„Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2026 11:02 KA-mennirnir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Danijel Dejan Djuric sem kom heim úr atvinnumennsku og samdi við KA. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson KA-menn eru enn eitt árið búnir að leggja mikið í sitt lið í Bestu deild karla í fótbolta en sérfræðingur Stúkunnar segir uppskeruna vera hvergi nærri því sem ásættanlegt er.
KA náði bara í eitt stig á móti botnliði Þórs í síðustu umferð og situr aðeins tveimur stigum frá fallsæti eftir 16 umferðir. Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Stúkunnar, ræddi gengi KA þegar Stúkan fór yfir sextándu umferðina. „Þú ert að tala um að þetta hafi verið stórt stig og báðir þjálfarar sáttir. Ég veit það samt ekki,“ sagði Albert. „Ef við setjum nágrannaslaginn til hliðar þá erum við að tala um Þórsliðið sem er mjög ungt lið og með litla reynslu í efstu deild. Svo horfum við á hvað er búið að leggja í þetta KA-lið og nöfnin þar og bara hvað þetta er dýrt lið,“ sagði Albert. Klippa: „Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ „Það skiptir engu máli að þetta sé KA á móti Þór því kröfurnar hljóta að vera að vinna tólfta sætið á heimavelli. Ef við tölum um gæði leiksins þá fannst mér bara eins og ég væri að horfa á tvö Lengjudeildarlið. Frammistaða KA var ekki góð,“ sagði Albert. „Taflan liti alls ekki vel út ef þeir hefðu tapað þessum leik,“ sagði Halldór Árnason, sérfræðingur Stúkunnar, en Albert skaut strax inn. „Hún hefði ekkert litið vel út heldur þótt þeir hefðu unnið leikinn,“ sagði Albert og sagði að hann gæti bara rifjað upp sömu punkta og hann var að tala um á sama tíma í fyrra. „Hvað er þetta þriðja árið í röð sem við erum að tala um þetta hjá KA? Það er hægt að fara til baka í júlí í fyrra og nota sömu punkta og þar. Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár? Að liðið bara svona rétt reddi sér í lokin og endi í sjöunda sætinu,“ sagði Albert „Þarf ekki einhvern tímann stigasöfnunin að fara að ríma við metnað stjórnarinnar? Af því að þetta er dýrt lið,“ sagði Albert en það má horfa á alla umræðuna hér fyrir ofan.
Besta deild karla KA Stúkan Mest lesið Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Íslenski boltinn Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Íslenski boltinn Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu Fótbolti Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Fótbolti Stór gulrót í bakgarðshlaupinu í Heiðmörk: „Alveg óskrifað blað“ Sport Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Formúla 1 Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Fótbolti Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Enski boltinn Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Fleiri fréttir ÍBV - Þróttur | Mættar til Eyja eftir fyrsta titil í sögu félagsins FH - Stjarnan | Stór hindrun í titilbaráttunni Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Haukar og Selfoss leika til úrslita Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Fámáll um orðrómana „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn Sjá meira