Gylfi ósáttur: „Ótrúleg ákvörðun hjá KSÍ“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 28. júlí 2026 21:55 Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík Guðmundur/Vísir Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var ánægður með frammistöðu liðsins lengst af í markalausu jafntefli gegn Stjörnunni í Garðabæ. Honum fannst þó þreyta hafa sett svip sinn á lokakafla leiksins eftir þétt leikjaprógramm. „
Við vorum svolítið sprungnar. Við spiluðum síðdegis á laugardegi og fengum aðeins tvo daga á milli leikja,“ sagði Gylfi eftir leik. Hann gagnrýndi harðlega þá ákvörðun að liðið skyldi þurfa að spila deildarleikinn á þriðjudegi eftir undanúrslitaleik um helgina. „Mér finnst það ótrúleg ákvörðun hjá KSÍ að setja undanúrslitaleik á laugardag og neyða okkur síðan til að spila á þriðjudegi. Mér finnst ótrúlegt að leikurinn hafi ekki verið færður yfir á miðvikudag.“ Gylfi var einnig ósáttur við að það hefði verið undir Stjörnunni komið hvort breyting á leikdegi yrði samþykkt. „Af hverju ætti Stjarnan að samþykkja að gefa okkur einn aukadag í hvíld þegar þær þurfa ekki á því að halda? Það er margt sem ég tel að þurfi að breyta.“ Grindavík/Njarðvík átti góða kafla í leiknum, en þegar leið á tók Stjarnan að færa sig framar á völlinn. „Mér fannst Stjarnan liggja aðeins á okkur undir lokin. Þá fannst mér við ekki eiga mikið meira inni.“ Þjálfarinn var engu að síður afar ánægður með fyrstu 60 til 70 mínútur leiksins og taldi sína leikmenn hafa átt að vera komna í betri stöðu. „Ég er ótrúlega ánægður með fyrstu 60 til 70 mínúturnar. Mér fannst frekar að við hefðum átt að gera betur þar og vera komnar yfir miklu fyrr.“ „Að mínu mati hefðum við átt að vera búnar að koma okkur í þægilega stöðu eftir klukkutíma leik. Þannig upplifði ég leikinn.“ Nú tekur við kærkomið hlé hjá liðinu um verslunarmannahelgina áður en undirbúningur hefst fyrir næsta verkefni. „Það er frí um helgina. Við hittumst síðan aftur eftir helgi og byrjum að undirbúa næsta leik. Það er ágætt að fá þetta hlé og leikmenn geta nýtt það eins og þær vilja.“
UMF Grindavík UMF Njarðvík Stjarnan Besta deild kvenna KSÍ Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Sjá meira