Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Agnar Már Másson skrifar 28. júlí 2026 17:17 Ming Ting Mancel var í dag dæmd í tólf ára fangelsi fyrir að myrða dóttur sína. Vísir/Vilhelm Héraðssaksóknari fer fram á gæsluvarðhald yfir Ming Ting Mancel, sem var í dag dæmd í tólf ára fangelsi í Edition-málinu. Var hún sakfelld fyrir manndráp og brot í nánu sambandi í samráði við eiginmann sinn. Hún hefur ákveðið að áfrýja dómnum. Verði varðhaldskrafan samþykkt verður hún í varðhaldi þar til endanleg niðurstaða í málinu liggur fyrir.
Ming Ting Mancel var sakfelld fyrir að bana Catherine, dóttur sinni, í samverknaði við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í miðborg Reykjavíkur. Karl Ingi Vilbergsson héraðssaksóknari staðfestir við Vísi að hann hafi þegar sent gæsluvarðhaldskröfu til héraðsdóms á grundvelli almannahagsmuna í kjölfar þess að dómur var kveðinn yfir Ming í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Karl segir að ástæðan sé sú að það þyki ótækt að hún gangi laus á meðan beðið sé eftir meðferð málsins fyrir Landsrétti, í ljósi alvarleika sakargifta. Hann kveðst sáttur við að fallist hafi verið á rök ákæruvaldsins um að það væri fullsannað að hún hefði gerst sek um manndráp og brot í nánu sambandi. Ming hefur sætt farbanni á Íslandi frá því að hún losnaði úr gæsluvarðhaldi í september í fyrra og hefur síðan þá gengið laus um landið. Áfrýja Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming, sagði strax eftir dómsuppkvaðningu í dag að Ming væri búin að ákveða að áfrýja dómnum. Ming sætir þó ekki fangelsisvist fyrr en endanleg niðurstaða er komin í málinu. „Hún er búin að lýsa því yfir að hún ætli að áfrýja, þannig að það verður að bíða og sjá hvað Landsréttur gerir,“ segir Karl Ingi saksóknari. Ef fallist verður á gæsluvarðhaldskröfuna mun sá tími sem hún situr í gæsluvarðhaldi dragast frá endanlegum dómi, að sögn Karls Inga. Í fyrra dvaldi hún í gæsluvarðhaldi í um tvo og hálfan mánuð sem verður dreginn af tólf ára fangelsisvistinni. Samráð, ekki hlutdeild Dómurinn hefur ekki verið birtur opinberlega og því liggja forsendur hans ekki fyrir en Karl Ingi segir að dómurinn hafi talið þátt Ming í manndrápinu hafa verið minni en þátt eiginmannsins, en þó nægjanlegan til að um samverknað sé að ræða frekar en hlutdeild. „Það kemur fram að þáttur hennar hafi verið eitthvað minni en þáttur hans,“ segir Karl Ingi. Sjá einnig: Manndráp á Reykjavík Edition Því hafi hún verið dæmd í tólf ár frekar en sextán ár fyrir manndráp. Karli Inga kveðst þó ekki hafa gefist tækifæri til að grandskoða dóminn. Vísir ræddi einnig stuttlega við Ómar verjanda á fjórða tímanum síðdegis en hann sagði að það vekti furðu sína að fyrst viðurkennt væri að aðild hennar að manndrápinu hafi verið minni, væri hún dæmd fyrir samverknað frekar en hlutdeild.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Sjá meira