„Ég þarf bara að teipa þetta aðeins“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. júlí 2026 10:02 Ökklinn hefur verið að angra Nikolaj Hansen síðustu vikur. vísir / sýn sport „Ég er ekki búinn að æfa mikið en ég held að þetta verði allt í lagi,“ segir Nikolaj Hansen, framherji Víkings sem hefur verið að glíma við ökklameiðsli, fyrir seinni leikinn gegn Hapoel Be‘er Shiva í undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Nikolaj hefur verið sjóðheitur fyrir lið Víkings í Evrópukeppnum síðustu misseri og skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri Víkings í fyrri leiknum gegn Hapoel Be‘er Shiva. Liðið þarf á öllum hans kröftum að halda í kvöld en Nikolaj hefur verið að glíma við meiðsli. Hann hefur verið með stökkbólginn ökkla síðan í síðasta einvígi gegn Györ en kveðst samt klár í slaginn. „Ég þarf bara að teipa þetta aðeins og þá verður vonandi allt í lagi,“ segir Nikolaj en hann fékk líka góða hvíld í síðasta leik Víkings, 5-1 sigri gegn Keflavík. „Planið var að ég myndi spila á móti Keflavík en við tókum stöðuna daginn fyrir, ökklinn var búinn að vera vondur, og við tókum bara ákvörðun um að það væri gott að gefa þessu nokkra daga í viðbót. Þetta er bara hluti af því að vera fótboltamaður, það er alltaf eitthvað að plaga mann en þegar leikurinn byrjar gleymist þetta fljótt.“ Fyrri leikurinn gegn Be‘er Shiva heppnaðist vel hjá Víkingi að mati Nikolaj og hann segir liðið leggja upp með sömu taktík í kvöld, háa pressu. „Já við verðum að spila okkar leik áfram og pressa. Við þurfum samt að passa betur upp á plássið bakvið vörnina, við sáum það í fyrri leiknum að þeir eru hættulegir ef við förum of hátt. Við förum bara inn í leikinn með sama plan og síðast og ætlum að sýna hversu gott Víkingsliðið er.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Nikolaj Hansen var glaður þegar hann haltraði í viðtal eftir leik Víkings og Beer Sheva í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann skoraði bæði mörk Íslandsmeistaranna í 2-1 sigri þeirra. 21. júlí 2026 21:50 Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira
Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Nikolaj Hansen var glaður þegar hann haltraði í viðtal eftir leik Víkings og Beer Sheva í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann skoraði bæði mörk Íslandsmeistaranna í 2-1 sigri þeirra. 21. júlí 2026 21:50