Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 29. júlí 2026 07:00 Elísabet Guðmundsdóttir ræddi við blaðamann um lífið og ævintýrin í New York. Aðsend „Stundum held ég að ég sé bara að fara út í venjulegan vinnudag en svo endar kvöldið allt öðruvísi en ég bjóst við,“ segir hin 24 ára gamla Elísabet Guðmundsdóttir sem er búsett í New York og elskar ævintýri borgarinnar. Elísabet hefur búið erlendis stóran hluta ævi sinnar en flutti nítján ára gömul til New York til að stunda nám við hinn virta listaháskóla Parsons. „
Það er alltaf eitthvað að gerast í New York. Hver einasta vika er í raun ólík hinni hjá mér,“ segir Elísabet sem starfar meðal annars þjónn á veitingastaðnum Cafe Mogador í hverfinu Williamsburg í Brooklyn, en hverfið er ansi vinsælt og smart. Lísa, eins og hún er oftast kölluð, hefur lent í ýmsum ævintýrum úti.Aðsend Sömuleiðis sér hún um samfélagsmiðlana fyrir íslenska húðvörumerkið Dóttir Skin, tekur að sér verkefni sem stílisti og vinnur stundum sem aðstoðarmaður í kvikmyndaverkefnum. Það er því nóg að gera hjá henni og dagarnir eru ansi fjölbreyttir en hún býr í hverfinu Bushwick sem er sömuleiðis í Brooklyn. Það eru liðin fimm ár frá því hún flutti í stórborgina og segist Elísabet í raun ekki sjá fyrir sér að flytja þaðan. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti. Hefurðu búið annars staðar erlendis? Já, ég hef flutt mjög mikið. Ég fæddist í Miami og flutti svo til Íslands þegar ég var fjögurra ára. Síðan bjó ég um tíma í Þýskalandi og flutti svo til London þegar ég var fjórtán ára. New York er þó klárlega uppáhalds staðurinn minn. Ég kynntist New York ung að aldri þar sem frænkur mínar búa þar og systir mín bjó þar líka í sex ár. Ég hef því farið endalaust í heimsóknir þangað í gegnum tíðina. Lísa bjó lengi erlendis í æsku en hefur nú verið í New York í fimm ár.Aðsend Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér? Daglegt líf er frekar kaotískt þessa dagana. Ég útskrifaðist úr Parsons með gráðu í tísku-viðskiptum (Strategic Design and Management) á síðasta ári og er enn að finna út úr því nákvæmlega hvað ég vil gera næst. Engin vika er eins og oft veit ég ekki fyrr en sama dag hvað verður á dagskránni. Það er svolítið það sem ég elska við New York, maður veit aldrei hvað kemur upp. Lísa elskar fjölbreyttu dagana úti.Aðsend Hvað er skemmtilegast við lífið úti? Ég elska hvað New York er ótrúlega handahófskennd. Maður veit aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér. Stundum held ég að ég sé bara að fara út í venjulegan vinnudag, en svo endar kvöldið allt öðruvísi en ég bjóst við. Ég hef til dæmis farið beint úr vinnunni á VIP-svæði á Madonnu-tónleikum og lent í alls konar óvæntum ævintýrum með vinum mínum. Það er eiginlega það sem ég elska mest við borgina. Lífið er skemmtilegt hjá Lísu og hún hefur unnið með ýmsum stórstjörnum. Hér á myndinni er meðal annars fyrirsætan og leikkonan Julia Fox lengst til vinstri.Aðsend En mest krefjandi? Það er klárlega að vera langt frá fjölskyldunni minni og evrópskri menningu. Það tók mig líka smá tíma að venjast amerískri menningu og því hvernig fólk hugsar og lifir. Líka að fá ekki íslenskt nammi eða bragðaref. Það er mjög erfitt fyrir mig! Lísa saknar islenska bragðarefsins!Aðsend Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til? Það sem stendur mest upp úr er hvað ég hef upplifað ótrúlega margt á stuttum tíma. Þegar ég flutti út var ég bara nítján ára og þekkti eiginlega engan. Núna er ég komin með frábæran vinahóp og hef fengið tækifæri sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Til dæmis vann ég nýlega með fimm poppstjörnum á einni viku sem aðstoðarmaður á setti (e. Production Assistant). New York hefur opnað ótrúlega margar dyr fyrir mig. New York hefur opnað ótrúlega margar dyr fyrir Lísu og hún er umkringd skemmtilegu fólki.Aðsend Hvaða hverfi er í uppáhaldi og af hverju? Ég held að Lower East Side sé uppáhalds hverfið mitt. Þar er svo mikið líf, fullt af litlum búðum, kaffihúsum og börum og mér finnst stemningin þar svo skemmtileg. Lísa og vinir hennar elska Lower East Side hverfið í New York.Aðsend Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti? Uppáhalds kaffihúsið mitt er klárlega Kijitora. Þau eru með besta matcha í New York, sérstaklega jarðarberja-matcha. Ef ég þarf að velja veitingastaði eru Kiki’s og Roberta’s í toppsætunum. Kiki’s er líklega númer eitt hjá mér. Þetta er grískur veitingastaður í Lower East Side sem er í gömlu prentsmiðjuhúsnæði. Maturinn er ótrúlega góður og stemningin frábær. Veitingastaðurinn Kiki's er í uppáhaldi hjá Lísu.Aðsend Hvernig er draumadagur fyrir þig úti? Það er heitur sumardagur, ég hitti vini mína og við byrjum á bröns, löbbum um borgina, kíkjum í búðir, stoppum á kaffihúsum og endum ábyggilega á bar. Svo sækjum við vini á leiðinni og bætum í hópinn. Bara engin plön og sjáum hvert dagurinn leiðir okkur. Ég elska vini mína klárlega mjög mikið eins og heyrist! Lísa elskar vini sína mjög mikið enda eru þeir hálfgerð fjölskylda úti.Aðsend Hefurðu fundið fyrir heimþrá? Já og nei. Ég er mjög heppin að eiga frænkur í New York sem hjálpa mér mikið og ég fæ útrás fyrir heimþrána með þeim. Ég fæ samt oftast mesta heimþrá þegar ég fer til Íslands og þarf svo að fara aftur út. Mér líður þó svo vel í New York að ég sé mig ekki flytja heim á næstunni. New York lífið á mjög vel við Lísu.Aðsend Hvað er framundan? Það er mjög góð spurning og ég veit eiginlega ekki alveg svarið. Ég er að vinna að ýmsum verkefnum með vinum mínum og tek þeim tækifærum sem koma. Í New York veit maður aldrei hvern maður hittir eða hvaða dyr geta opnast, þannig að ég er bara spennt að sjá hvað gerist næst. Hver dagur er ævintýri hjá Lísu.Aðsend Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti? Kannski hve margir Bandaríkjamenn vita lítið um Evrópu. Mjög random, en mér líður eins og ég sé alltaf að kenna vinum mínum eitthvað. Ég lendi oft í því að þurfa að útskýra alls konar hluti um Ísland eða Evrópu sem mér finnst alveg sjálfsagðir. Það kemur mér enn á óvart. Margir Bandaríkjamenn vita lítið sem ekkert um Evrópu að sögn Lísu.Aðsend Hefurðu lent í einhverju steiktu eða fyndnu úti? Já, ég lendi stundum í því að heyra fólk tala íslensku þegar ég er í vinnunni. Ég þori yfirleitt ekki að segja neitt fyrst, en svo læt ég loksins vaða. Þau eru alltaf í sjokki því ég hljóma mjög amerísk þegar ég tala ensku og þau búast ekkert við því að ég sé íslensk. Svo endar þetta yfirleitt á því að þau þekkja frænkur mínar eða einhvern sem ég þekki. Heimurinn er svo lítill. Það kemur Lísu stöðugt á óvart hvað heimurinn er lítill og hún er alltaf að rekast á Íslendinga úti.Aðsend Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig? Ég held að ég verði úti í nokkuð langan tíma. Eins og staðan er núna kallar Ísland ekkert í mig. Mér líður ótrúlega vel í New York og finnst ég eiga margt eftir þar. En maður veit auðvitað aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Lísa er ekki á leiðinni til Íslands á næstunni!Aðsend
Íslendingar erlendis Bandaríkin Tónlist Mest lesið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Bíó og sjónvarp Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Fleiri fréttir Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Sjá meira