„Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. júlí 2026 12:22 Einar Guðnason sér mikið á eftir Freyju Stefánsdóttir en er stoltur af afreksstarfi Víkings. vísir Einar Guðnason er með augun opin fyrir framherja eftir brotthvarf Freyju Stefánsdóttir. Þjálfari Víkings reiknar með hörkuleik gegn Þrótti í kvöld og stefnir á að snúa við slæmu gengi liðsins.
Stórtíðindi bárust á leikdegi hjá Víkingi því í morgun var greint frá því að Freyja Stefánsdóttir hefði verið seld til sænska félagsins Djurgarden. „Sem þjálfari er ég auðvitað sár og svekktur að missa lykilmann úr liðinu. En ég er búinn að þjálfa Freyju í yngri flokkunum líka, hef fylgst lengi með henni og er Víkingur. Þannig að maður er auðvitað gríðarlega stoltur af því að sjá enn einn leikmanninn úr yngri flokka starfi Víkings fara í sterka deild í Skandinavíu. Nú eru þær fjórar, og hálf eiginlega, sem fóru úr yngri flokka starfinu okkar í sænsku og norsku deildina. Það er mikil viðurkenning fyrir Víking og við erum stoltir af því. En auðvitað erum við svekkt að missa Freyju úr liðinu, hún er bæði frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna,“ sagði Einar Guðnason í samtali við Vísi. Markaðurinn er auðvitað opinn, hvernig horfið þið í framherjastöðuna núna, verður einhver fengin inn í staðinn? „Við erum að sjálfsögðu að skoða það. Hvað er í boði og hvað við getum tekið inn.“ Víkingur missir framherja en fékk á dögunum markmann. Landsliðskonan Telma Ívarsdóttir kom frá Rangers og mun standa milli stanganna í kvöld. „Já, hún fékk leikheimild í gær og verður með í kvöld.“ Víkingur hefur gert tíðar breytingar á markmannsstöðunni og Telma verður fjórði markmaðurinn sem spilar undir stjórn Einars. „Ég held að það hefði ekki skipt neinu máli hvaða markmaður hefði verið í liðinu hjá okkur þegar Telma er laus, við hefðum alltaf farið á eftir henni. En að sjálfsögðu er bara virk samkeppni um markmannsstöðuna eins og aðrar stöður, það hefur reynt á það líka í sumar.“ Víkingur er í neðsta sæti með 10 stig en Þróttur er með 13 stig fyrir leik kvöldsins. vísir Víkingur mætir Þrótti í 13. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Liðin eru hvorug í frábæru formi. Víkingur er í neðsta sæti deildarinnar og hefur tapað síðustu þremur deildarleikjum. Þróttur er þremur stigum ofar og hefur tapað síðustu fjórum deildarleikjum, en vann vissulega undanúrslitaleik Mjólkurbikarsins síðustu helgi. „Bikarþynnka“ er þekkt fyrirbæri en Einar trúir ekki að það verði staðan á Þrótturum í kvöld. „Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkur í þessari baráttu… Ég held að það sé ekkert svoleiðis í gangi hjá þeim, það eru bara allir með fullan fókus á þennan leik… Það er búin að vera smá brekka hjá okkur undanfarið en við erum búin að æfa vel og ég hef fulla trú á því að við gerum góða hluti á Þróttarvellinum í kvöld.“
Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira