Viðskipti erlent

Olíu­verð fellur í kjöl­far sprengjuhlés

Árni Sæberg skrifar
Börn að leik utan við Bandar Abbas, sem liggur við hið mikilvæga Hormússund.
Börn að leik utan við Bandar Abbas, sem liggur við hið mikilvæga Hormússund. AP Photo/Amirhosein Khorgooi

Verð á Brent-hráolíu hefur fallið um níu prósent það sem af er degi eftir að hafa einnig lækkað í gær. Verðið stendur nú í 88 Bandaríkjadölum eftir að hafa rofið 100 dala múrinn fyrir helgi. Ástæða lækkunarinnar er sú að Bandaríkin og Íran hafa gert hlé á átökum sínum og flutningaskip geta því siglt um Hormússund.

Líkt og greint hefur verið frá mun Íran gera hlé á árásum svo lengi sem Bandaríkin gera slíkt hið sama. Þetta hefur Reuters eftir háttsettum írönskum embættismanni en Bandaríkin gerðu hlé á sprengjuárásum sínum eftir að ráðgjafar Donalds Trump forseta tjáðu honum að listi skotmarka færi þverrandi og þeir hefðu áhyggjur af stöðu vopnabúrs Bandaríkjanna.

Ekki var greint frá neinum árásum um helgina en hléið kemur í kjölfar þrettán daga árásarhrinu sem virtist færast í aukana. Íran svaraði árásum Bandaríkjanna með eigin árásum á nágrannalönd sín sem hýsa bandarískar herstöðvar.

Tunnuverðið á Brent-hráolíu hækkaði mjög hratt þegar stríð hófst milli Bandaríkjanna og Írans í lok febrúar en það er gjarnan notað sem viðmið fyrir olíuverð á heimsvísu. Þegar samið var um vopnahlé tók verðið að lækka rólega um tíma en tók svo aftur stökk upp á við þegar stríðið hófst á ný í byrjun júlímánaðar. Á fimmtudag náði það hundrað bandaríkjadölum á tunnu og er það í fyrsta sinn frá því í maí.

Olíuverð hefur lækkað um helgina og lækkunin hefur haldið áfram það sem af er degi. Nú stendur verðið í 88 dölum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×