Gosling verður Skrattakollur Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. júlí 2026 10:55 Gosling mun fara með hlutverk skrattakollsins Johnny Blaze. Leikarinn Ryan Gosling er nýjasta stjarnan sem gengur til liðs við kvikmyndaheim Marvel og mun fara með hlutverk mótorhjólaknapans Johnny Blaze, þekktur sem Ghost Rider eða Skrattakollur, í kvikmynd um kappann árið 2028.
Bransamiðillinn Variety greinir frá en Kevin Feige, forstjóri kvikmyndaversins Marvel Studios, tilkynnti þessi tíðindi á nördahátíðinni Comic Con í San Diego um helgina. Leikstjóri myndarinnar verður Shawn Levy sem hefur áður gert Free Guy (2021) og Deadpool & Wolverine (2024), handritshöfundurinn Jonathan Tropper mun skrifa handritið og myndarinnar er að vænta árið 2028. Levy og Gosling unnu nýverið saman að Stjörnustríðsmyndinn Star Wars: Starfighter sem verður frumsýnd 28. maí 2027 og sá fyrrnefndi vann nýverið með Marvel að Deadpool & Wolverine. Gosling er annar leikarinn til að leika Skrattakollinn Johnny Blaze í leikinni kvikmynd því Nicolas Cage lék hann í kvikmyndunum Ghost Rider (2007) og Ghost Rider: Spirit of Vengeance (2011) sem fengu báðar arfaslaka dóma. Þá fór Gabriel Luna með hlutverk karaktersins í sjónvarpsþáttunum Agents of S.H.I.E.L.D. (2013-20). Sjá einnig: Skrattakollur á mótorfáki Í teiknimyndum er Johnny Blaze mótorhjólaknapi sem starfar við áhættuleik og selur djöflinum Mephisto sál sín í skiptum fyrir að hann lækni föður hans af krabbameini. Samningurinn er fástískur, faðirinn læknast af krabbameini en deyr svo í mótorshjólaslysi meðan sál sonarins binst yfirnáttúrulegum djöfli. Það gerir Blaze kleift að breyta sér í logandi beinagrindarknapa sem býr yfir ótrúlegum styrk og ýmsum öðrum kröftum. Gosling hefur verið á ágætis róli síðustu ár, lék Ken í stórmyndinni Barbie fyrir þremur árum og sló í gegn sem geimfarinn Ryland Grace í geimmyndinni Project Hail Mary fyrr á þessu ári.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Fleiri fréttir Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira