Barnabarn Idi Amin keppir á Samveldisleikunum: „Verð nýr konungur Skotlands“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2026 09:02 Idi Amin komst til valda í Úganda 1971 en var steypt af stóli átta árum seinna. epa/THE JOHANNESBURG STAR Aziz Abdul er ekki bara barnabarn fyrrverandi einræðisherra Úganda, hins alræmda Idis Amin, heldur einnig boxari sem keppir á Samveldisleikunum sem nú standa yfir í Glasgow í Skotlandi.
Hinn 25 ára Abdul mætir Damar Thomas í átta manna úrslitum í ofurþungavigt á Samveldisleikunum á miðvikudaginn. Abdul er ekki eini boxarinn í fjölskyldunni því afi hans, Idi Amin, var sjálfur liðtækur í hringnum. Hann er þó þekktari fyrir að stjórna Úganda með harðri hendi á árunum 1971-79. Talið er að í stjórnartíð hans hafi allt að hálf milljón manns verið myrt. Abdul hefur mikið álit á afa sínum og segist nota líf og störf hans sem hvatningu. „Árangur afa míns veitti mér innblástur. Hann var þungavigtarboxari eins og ég og ég er svo stoltur af honum. Ljón ala af sér ljón. Ljón getur ekki alið af sér hund eða úlfalda. Ljón verður að líkjast ljóni. Þetta er bara svona. Ég er sannur stríðsmaður. Ég er sonarsonurinn,“ sagði Abdul kokhraustur. Amin var hugfanginn af Skotlandi og kallaði sig Konung Skotlands. Það er einnig nafn á kvikmynd þar sem Forest Whitaker fór með hlutverk einræðisherrans. Adbul vonast nú til að geta sigrað Skotland þar sem Samveldisleikarnir fara fram. „Ég er mjög ánægður með að berjast við Englending. Ég hef beðið eftir þessu augnabliki í þrjú ár. En nú erum við ekki í Afríku heldur í Evrópu. Eins og afi minn sagði alltaf, þá verður maður að vinna með rothöggi, þannig að það er það sem við höfum æft og það er það sem ég vonast til að gera,“ sagði Abdul. „Ég þekki bresku þungavigtarkappana Anthony Joshua og Tyson Fury en fyrirmyndin mín er Mike Tyson: grimmasti maður jarðar. Ef ég vinn gullverðlaunin verð ég grimmasti maðurinn í Samveldinu, grimmasti maðurinn í Glasgow og nýr konungur Skotlands.“ Ef hinn 25 ára Abdul sigrar Thomas eftir tvo daga mætir hann annað hvort Ganverjanum Daniel Plange eða hinum norður-írska William John McCartan í undanúrslitum ofurþungavigtarinnar.
Box Úganda Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Yamal gæti farið út af sporinu og ÍBV frumsýnir Kana Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Sjá meira