Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. júlí 2026 23:55 Ungliðahreyfingin hefur staðið fyrir mótmælum síðan í lok júní víðs vegar um Indland. Getty Narendra Modi forsætisráðherra Indlands féllst á kröfur ungliðahreyfingar sem kallar sig Kakkalakkana sem höfðu staðið fyrir mótmælum í fimm vikur og meðal annars krafist afsagnar menntamálaráðherra landsins.
Ungliðahreyfingin aflýsti mótmælunum sem virtust engan enda ætla að taka og fögnuðu á götum Janta Mantar í Nýju Delí þegar ríkisstjórn Modi féllst á kröfur mótmælenda og menntamálaráðherra landsins, Dharmendra Pradhan, sagði af sér. „Kakkalakkarnir“ hafa staðið fyrir mótmælum frá því í síðasta mánuði eftir að prófgögnum í inntökupróf í læknanám var lekið sem neyddi um tvær milljónir nemenda til að taka endurtökupróf. Atvikið hafi magnað upp reiði og vonleysi um framtíðarmöguleika ungs fólks á Indlandi, segir í umfjöllun Reuters. Mótmælin hafi endurspeglað vaxandi reiði gagnvart stjórnvöldum vegna mikils atvinnuleysis. Mótmælendur hafi krafist umfangsmikilla umbóta á menntakerfi landsins auk afsagnar Pradhan. Ungliðahreyfingin er leidd af Abhijeet Dipke, 30 ára stjórnmálafræðingi og fyrrverandi nemanda við Boston-háskóla, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins. „Kakkalakkarnir“ hafi fengið gríðarlegt fylgi á netinu og breytt einu fyrirlitnasta skordýri heims í tákn seiglu en hreyfingin sé með 26 milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlinum Instagram. „Sigur friðar, þolinmæði og þrautseigju“ Mótmælin hafi náð hámarki í vikunni þegar þúsundir mótmælenda hafi arkað að þinghúsinu í Nýju Delí. Lögreglan hafi beitt táragasi til að hafa stjórn á mótmælendum sem hafi aðeins bætt í bræði mótmælenda. Afsögn ráðherrans hafi komið á óvart þar sem Modi sé þekktur fyrir það að bregðast ekki við undan þrýstingi frá almenningi. Modi hafi stöðugt þrengt að andspyrnu borgara á Indlandi, heimsins stærsta lýðræðisríki, segir í umfjöllun New York Times. Stjórnarandstöðuflokkar hafi tekið undir kröfur unga fólksins og truflað þingstörf í vikunni. Heilbrigðisráðherra Indlands, J.P. Nadda, sagði á blaðamannafundi að ríkisstjórnin hefði fallist á allar kröfur hreyfingarinnar, meðal annars miklar umbætur á prófakerfinu og að fella niður kærur á hendur mótmælendum. Pradhan tilkynnti afsögn sína í færslu á X og sagði: „Með hliðsjón af þeirri stöðu í Jantar Mantar og um allt land, svo að andþjóðleg öfl nýti sér ekki stöðuna og til að varðveita samheldni þjóðarinnar... hef ég sent afsagnarbréf mitt til forsætisráðherrans.“ Afsögn Pradhan hafi verið „sigur friðar, þolinmæði og þrautseigju,“ skrifaði aðgerðasinninn Sonam Wangchuk á X. Hann var í hungurverkfalli í 26 daga til stuðnings ungliðahreyfingunni.
Indland Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira