Lífið

Einar Örn og Birna selja ein­býlis­húsið

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Birna Ósk Hansdóttir og Einar Örn Jónsson. Einar segir komið að næsta kafla í húsnæðismálum.
Birna Ósk Hansdóttir og Einar Örn Jónsson. Einar segir komið að næsta kafla í húsnæðismálum. Samsett

Hjónin Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, og Birna Ósk Hansdóttir, verkefna- og viðburðastjóri, hafa sett 222 fermetra einbýlishús sitt á Seltjarnarnesi á sölu. Ásett verð hússins er 214,9 milljónir króna. 

Um er að ræða nýlegt 222 fermetra einbýlishús í Suðurmýri á Seltjarnarnesi. Húsið er á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og stórum svölum til suðurs með heitum potti. Nánar má lesa um eignina á Fasteignavef Vísis.

„Jæja, maður yngist víst ekkert og nú er komið að næsta kafla í húsnæðismálum. Erum að selja okkar ástkæru Suðurmýri og bjóðum áhugasömum að koma og skoða dýrðina á þriðjudag,“ skrifar Einar Örn í Facebook-færslu

Eignin er staðsett í hjarta Seltjarnarnesbæjar þar sem öll þjónusta er í næsta nágrenni og bæjarmörkin við Vesturbæinn í Reykjavík eru bak við húsið.

Gengið er inn í rúmgóða forstofu á neðri hæðinni og þar inn af er eitt svefnherbergi. Einnig eru tvö önnur svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi með baðkari og sturtu á neðri hæðinni ásamt tvöföldu þvottahúsi og stórum bílskúr.

Á efri hæðinni er eldhús með stórri eyju, stofa, borðstofa og hjónaherbergi með sér fata- og baðherbergi með sturtu. Út frá stofunni er útgengt á stórar yfirbyggðar svalir til suðurs með heitum potti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.