Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Samúel Karl Ólason skrifar 23. júlí 2026 12:54 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist vonsvikinn með leiðtoga Húta. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran.
Í færslu sem hann skrifaði á Truth social rifjar Trump upp að í fyrra hafi Bandaríkjamenn gert umfangsmiklar árásir gegn Hútum vegna ítrekaðra árása þeirra á skip á Rauðahafi. Síðan þá hafi leiðtogar Húta sýnt mikla ábyrgð. Sjá einnig: Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Nú séu þeir hins vegar aftur byrjaðir að haga sér illa, með því að skjóta á tvö skip frá Sádi-Arabíu í gær. Þeir hæfðu minnst eitt þeirra en Sádar hafa reynt að koma olíu þeirra til kaupenda gegnum Rauðahaf, eftir að Íranir hófu árásir á skip á Hormússundi. Sjá einnig: Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Forsetinn sagði að færsluna ætti að líta á sem yfirlýsingu þess efnis að ef Hútar geri aftur sambærilegar árásir muni Bandaríkin líta svo á að Íranir beri ábyrgðina, enda séu Hútar skósveinar þeirra. Báðum aðilum verði refsað með umfangsmiklum árásum. Þá sagðist Trump verulega vonsvikinn með Húta, þar sem þeir hefðu hingað til „hagað sér mjög fagmannlega og gáfulega“. Færsla Trumps á Truth Social, eða svokallaður „sannleikur“. Hútar, sem njóta stuðnings frá Íran, hafa um árabil háð blóðuga styrjöld við alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen. Þeir hafa sömuleiðis gert árásir í Sádi-Arabíu en Sádar hafa staðið við bakið á yfirvöldum í Jemen. Bandaríkjamenn hafa verið að flytja töluvert af eldsneytisflugvélum, eftirlitsflugvélum og önnur hergögnum á svæðið. Samkvæmt yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum eru rúmlega fimmtíu þúsund bandarískir hermenn við störf í Mið-Austurlöndum. Bendir það til þess að Trump vilji í það minnsta halda opnum þeim möguleika að auka enn frekar umfang árása á Íran.
Bandaríkin Donald Trump Hernaður Jemen Bensín og olía Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað. 23. júlí 2026 07:18 Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur kostað um það bil 37,5 milljarða dala. Það sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, á fundi fjármálanefndar öldungadeildarinnar í gær, þar sem hann bað um 95 milljarða dala aukafjárveitingu fyrir ráðuneytið. Um mikinn átakafund var að ræða þar sem til skarpra orðaskipta kom. 22. júlí 2026 08:49 Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur. 22. júlí 2026 06:56 Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran í nótt, þá tíundu í röð síðan vopnahlé landanna tveggja fór út um þúfur. Íranir gerðu síðan árás á olíuskip á Hormússundi í morgun og skemmdu það þannig að áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið. 21. júlí 2026 08:25 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira
Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað. 23. júlí 2026 07:18
Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur kostað um það bil 37,5 milljarða dala. Það sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, á fundi fjármálanefndar öldungadeildarinnar í gær, þar sem hann bað um 95 milljarða dala aukafjárveitingu fyrir ráðuneytið. Um mikinn átakafund var að ræða þar sem til skarpra orðaskipta kom. 22. júlí 2026 08:49
Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur. 22. júlí 2026 06:56
Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran í nótt, þá tíundu í röð síðan vopnahlé landanna tveggja fór út um þúfur. Íranir gerðu síðan árás á olíuskip á Hormússundi í morgun og skemmdu það þannig að áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið. 21. júlí 2026 08:25