Bíó og sjónvarp

Musk ætlar að gera eigin Ódys­seifs­kviðu með gervi­greind

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Elon Musk með gervigreindarsköpuðum Ódysseifi.
Elon Musk með gervigreindarsköpuðum Ódysseifi.

Auðkýfingurinn Elon Musk hefur ítrekað gagnrýnt leikstjórann Christopher Nolan síðustu mánuði vegna ráðningar hans á hörundsdökkum leikurum og trans manni í Ódysseifskviðu. Nú hefur Musk lýst því yfir að hann muni ljúka við „sögulega nákvæmari“ aðlögun á Ódysseifskviðu fyrir árslok með hjálp gervigreindarinnar Grok.

Ódysseifskviða Christophers Nolan hefur verið í bígerð síðustu þrjú ár og verið mikið til umræðu á netinu. Íhaldssamasti kimi netheima hefur bölvað því að aðalpersónur myndarinnar séu ekki grískari en raun ber vitni og að Nolan sé að tikka í box fjölmenningar með leikaravali sínu. 

Musk hefur verið fremstur í flokki þessa hóps og gagnrýnt sérstaklega að hin hörundsdökka Lupita Nyong'o fari með hlutverk Helenu fögru og að Elliot Page leiki hermanninn Sínon. Musk sagði Nolan vera á verðlaunaveiðum með ráðningunum og hafa „glatað heilindum sínum“.

Elliot Page leikur hermanninn Sínon.

Nýjasta útspil auðkýfingsins er að lýsa yfir því að hann muni gera „sögulega nákvæma“ útgáfu af Hómerskviðunni með gervigreindarlíkaninu Grok Imagine.

„Fyrir árslok mun Grok Imagine búa til kvikmynd í fullri lengd upp úr Ódysseifskviðu sem er sögulega nákvæm og sönn list Hómers,“ skrifaði Musk í færslu á X og vísaði í þriggja mínútna klippu af samtali Ódysseifs og dísarinnar Kalypsó sem notandi miðilsins hafði látið gervigreindina búa til.

Í annarri færslu sagðist Musk tilbúinn að fjármagna hundrað milljón dala kvikmynd upp úr kviðunni sem Mel Gibson myndi leikstýra. Ekkert bendir þó til þess að nokkuð slíkt sé í bígerð.

Ramakvein netverja yfir Ódysseifskviðu Christophers Nolan virðist þó hafa haft lítil áhrif á almenna bíógesti og gagnrýnendur. Myndin rakaði inn um 264 milljónum Bandaríkjadala yfir helgina og hefur hlotið mikið lof hjá gagnrýnendum. Nolan hefur líka verið einarður í afstöðu sinni gegn gervigreindinni upp á síðkastið.

„Hugmyndin um að hún [gervigreindin] skipti algjörlega út mannfólki og mennskri sköpun er fyrir mér algjört kjaftæði,“ sagði Nolan í nýlegu viðtali.


Tengdar fréttir

Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs

The Odyssey eftir Christopher Nolan er epísk þriggja tíma ævintýraferð um Miðjarðarhafið þar sem Ódysseifur tekst á við reiði guðanna og ógnvænleg skrímsli en líka eigin sektarkennd. Sjónarspil, hasar og Hollywood-stjörnur ráða för þó Nolan setji sitt eigið handbragð á söguna með nútímalegri, ögn náttúrulausri og kristinni nálgun.

Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon

Framkvæmdastjóri  True North segir Ódysseifskviðu frábæra landkynningu og koma Íslandi enn á ný á kortið sem frábæran tökustað. Hápunktur tökutímabilsins hafi verið að sjá 450 Íslendinga hlaupa á eftir stórstjörnunni Matt Damon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.