Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Samúel Karl Ólason skrifar 23. júlí 2026 08:31 Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í máli Skúla Tómasar í fyrradag. Lagaprófessor segir að þegar lögum um Landlækni og lýðheilsu hafi verið breytt árið 2023 hafi sérstaklega verið fjallað um það að það að svipta lækna starfsleyfi sé ekki álitið refsing. Þess í stað væri markmiðið aðvörun eða endurhæfing. Breytingin hafi þó verið gerð eftir meint brot Skúla Tómas Gunnlaugssonar.
Héraðsdómur vísaði í fyrradag frá máli héraðssaksóknara á hendur honum vegna manndráps og brota gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Sá úrskurður byggir á ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu um að ekki megi refsa fólki eða saksækja tvívegis fyrir sama brotið. Frávísunin var byggð á því að Skúla hafði þegar verið refsað vegna málsins þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi árið 2021. Ellefu mál er varða Skúla komu til kasta lögreglu. Þar af voru sex andlát rannsökuð sérstaklega. Fimm þeirra mála voru felld niður en Skúli ákærður fyrir að setja sjúkling sinn, Dönu Jóhannsdóttur, í lífslokameðferð án fyllilegrar ástæðu. Eva Hauksdóttir, lögmaður og dóttir Dönu, segir úrskurðinn vonbrigði. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, segir hugsunina á bak við það vera að ríkisvaldið fái almennt eitt tækifæri til að refsa fólki fyrir sama brotið. Það sé ekki hægt að refsa fólki aftur og aftur. Rétturinn hafi svo þróast í dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins. „Til þess að reglan sé brotin þurfa þrjú skilyrði að vera uppfyllt. Í fyrsta lagi að í báðum málum reyni á refsingar í skilningi mannréttindasáttmálans, og það á sérstaklega við í þessu máli,“ sagði Hafsteinn í kvöldfréttum Sýnar í gær. „En hin tvö skilyrðin eru, í öðru lagi, að þetta sé sama brotið sem er undir í báðum málunum og í þriðja lagi að þetta sé tvöföld endurtekin málsmeðferð. Þannig að það sé nú þegar búið að sýkna eða sakfella og svo er reynt að koma aftur.“ Hafsteinn segir Mannréttindadómstólinn leggja þrjú viðmið til grundvallar um hvað refsing sé. Aðeins eitt af þeim þurfi að vera uppfyllt. „Það er í fyrsta lagi flokkun brotsins í Landsrétti, þannig að er þetta refsing í íslenskum rétti? Svarið hér er nei og í sjálfu sér ekki byggt á því í dómnum,“ segir Hafsteinn. „Þá reynir á hin tvö viðmiðin sem voru undir í málinu. Það er þá annars vegar hvert er eðli brotsins? Er þetta í eðli sínu refsing? Og svo í þriðja lagi. Hver er alvarleiki viðurlaganna? Yfirleitt skoðar maður bara annað en ef hvorugt leiðir til skýrrar niðurstöðu má skoða þau saman en litið er til beggja í úrskurði héraðsdóms.“ Hafsteinn segir að í þessu tilviki reyni á grundvallarspurningu. „Er eðli þessara viðurlaga að vera í refsiskyni? Er verið að refsa fyrir eitthvað brot eða er einhver annar tilgangur sem er að baki? Til dæmis að fyrirbyggja að öryggi sjúklinga sé stefnt í voða eða að þetta sé aðvörun, einhvers konar endurhæfingar eða agaviðurlög. En ef þetta er fyrst og fremst í þeim tilgangi þá telst þetta ekki vera refsing í skilningi mannréttindasáttmálans.“ Viðtalið við Hafstein má sjá í spilaranum hér að neðan. Það hefst eftir um tvær mínútur og tuttugu sekúndur. Almennt sagðist Hafsteinn vilja benda á tvennt varðandi úrræði Landlæknis varðandi sviptingu læknaleyfis, eins og í tilfelli Skúla. Það fyrsta sé að lögum um Landlækni og lýðheilsu hafi verið breytt árið 2023. Þá hafi tveir áhugaverðir punktar komið fram í athugasemdum við frumvarpið. „Annars vegar tekur löggjafinn, eða sá sem samdi frumvarpið, afstöðu, berum orðum, til þess að þetta sé ekki refsing í skilningi þess ákvæðis. Þeir geta auðvitað haft rangt fyrir sér en þeir byggja á því.“ Hafsteinn segir þann punkt snúa að því að það komi beinlínis fram í frumvarpinu að markmiðið með þessum úrræðum sé aðvörun og endurhæfing. „Í því sambandi er vísað í sautjándu grein þessara laga, þar sem opnað er á valmöguleikann á að fá starfsleyfið aftur, ef heilbrigðisstarfsmaður upplifir öll skilyrði, og þær aðstæður sem leiddu til sviptingarinnar eru ekki enn fyrir hendi.“ Þá sé litið þannig á úrræðið að það sé í þágu endurhæfingar. Hinn punkturinn snýr að því að breytingin var gerð árið 2023, eftir að málsatvik í máli Skúla áttu sér stað. Þá sé ekki sjálfgefið að hægt sé að líta til þess í sakamáli. Hins vegar þurfi að túlka fimmtándu grein, þar sem kveðið er á um sviptingu starfsleyfis í ljósi forsögunnar og annarra ákvæða á þessum tíma. „Þessi sautjánda grein, um að fá starfsleyfið aftur, var til staðar á þeim tíma sem og fjórtánda grein, sem kveður á um að Landslæknir geti beint tilmælum til heilbrigðisstarfsmanns um að bæta úr, meðal annars lögbrotum.“ Hafsteinn segir reyna sérstaklega á túlkun fimmtándu greinar laganna hvort svipting starfsleyfisins teljist refsing í skilgreiningu Mannréttindasáttmála Evrópu. Nú sé bara spurningin hvort því verði áfrýjað og hvernig Landsréttur muni þá meta málið.
Læknamistök á HSS Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Embætti landlæknis Dómsmál Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Sjá meira