Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. júlí 2026 21:41 Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna undirritaði „friðsamlegan kjarnorkusamning“ við orkumálaráðherra Sádi-Arabíu. Getty Bandaríkin og Sádi-Arabía hafa undirritað samning sín á milli um rekstur bandarískra fyrirtækja á kjarnorkuverum í Sádi-Arabíu. Ekkert í samningnum hindrar úranauðgun Sáda til að framleiða kjarnorku, að sögn bandarískra fjölmiðla.
Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, og Abdulaziz bin Salman prins, orkumálaráðherra Sádi-Arabíu, undirrituðu „friðsamlegan kjarnorkusamning“ ásamt tvíhliða öryggisverndarsamningi í kvöld, segir í umfjöllun BBC. Eitt lykilatriði samningsins sé að með honum verði Sádí-Arabíu mögulega heimilt að auðga úran í kjarnorkustöð Bandaríkjanna í landinu, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um málið. Viðræðurnar um kjarnorkuáætlun landanna tveggja nái aftur til ársins 2008. Samkvæmt samningi Bandaríkjanna og Sameinuðu arabísku furstadæmanna frá árinu 2009 sé Sameinuðu arabísku fusratdæmunum óheimilt að framleiða eigið kjarnorkueldsneyti og sæti einnig ýmsum öðrum takmörkunum. Ekki liggi fyrir hvaða bandarísku fyrirtæki muni eiga hlut en Bandaríkin eigi mikilla viðskiptahagsmuna að gæta við undirritun þessa samkomulags. Einnig sé það Bandaríkjunum í hag að halda Sádí-Arabíu innan síns hernaðarlega áhrifasvæðis. Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna segir að „samstarfssamningur um friðsamlega nýtingu kjarnorku“ muni veita bandarískum fyrirtækjum „frábæran aðgang“ að kjarnorkuáætlun Sádi-Arabíu. „Það er alveg víst að þessir samningar fara eftir ströngustu kröfum um kjarnorkuöryggi og gegn útbreiðslu kjarnavopna en þeir byggja samtímis á bestu kjarnorkutækni og vísindamönnum heims, sem hönnuð er hér í Bandaríkjunum. Þökk sé Trump forseta er endurreisn bandarískrar kjarnorku hafin,“ sagði Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna. Sádar haldi þegar úti kjarnorkuáætlun sem þó er á byrjunarstigi. Helsti keppinautur þeirra í þeim efnum sé nágrannaríkið Íran. Trump hefur ítrekað lýst því yfir að Bandaríkin leitist við að veikja getu Írans til kjarnorkuframleiðslu í árásum Bandaríkjahers á landið. Óttast sé að Sádar hefji auðgun úrans hvetji það Írani til þess sama og hrindi af stað kjarnorkukapphlaupi.
Íran Bandaríkin Sádi-Arabía Kjarnorka Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira