Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Valur Páll Eiríksson skrifar 23. júlí 2026 11:00 Jónatan Ingi er að komast aftur af stað eftir erfið ökklameiðsli. Vísir/Lýður Valberg Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Vals, fagnar því að vera kominn á fullt með liðinu eftir erfið ökklameiðsli. Hann glímir í raun enn við meiðslin en lætur það ekki á sig fá. Hann stefnir á að spila alla leiki sem eftir eru. „
Það er allt annað að sitja og horfa á heldur en að geta verið úti á vellinum. Það er bara virkilega ánægjulegt að líða aðeins betur í skrokknum og gera það sem manni finnst skemmtilegast að gera,“ segir Jónatan sem hefur komið aftur inn í lið Vals að undanförnu. Hann segir skrokkinn þó ekki vera kominn í hans besta stand. „Ég hef alveg verið betri. Þetta tekur bara langan tíma og þetta verður örugglega svolítið vont, þetta tímabil, en samt bærilegt. Mér líður bara fínt.“ Jónatan meiddist illa á ökkla í bikarleik við KR í Egilshöll rétt áður en leikar hófust í Bestu deildinni. Það tók hann þrjá mánuði að komast út á völl. „Ég sleit einhver liðbönd í ökklanum þarna á móti KR. Það bara tekur mjög langan tíma að jafna sig, sérstaklega þegar maður er að þjösnast á þessu.“ Hann er þá enn að koma sér í leikform. „100 prósent. Ég hef lítið náð að æfa en það hefur aðeins verið að koma núna síðustu tvær vikur. Ég er klárlega að vinna upp leikform, það er hellingur búinn af leikjum, því miður, en það er líka hellingur eftir og ég stefni á að spila alla leiki sem eru eftir,“ Jónatan játar því að hann gæti komið inn í Valslið á betri stað. Tímabilið hefur verið vonbrigði fram til þessa og þá hefur það tapað fyrstu þremur leikjunum undir stjórn Chris Brazell, eftir uppsögn Hermanns Hreiðarssonar. „Já. Það er ekkert hægt að fela sig á bakvið það. Það hefur verið sambland svona tíu þátta sem hefur áhrif á það. Við leikmenn getum bara litið í eigin barm og við þurfum allir að stíga upp. Svo höfum við verið óheppnir með meiðsli, sum voru vituð en önnur, eins og mín, var ekki búist við. En nú þurfum við allir að snúa bökum saman. Það þýðir ekkert að vorkenna sjálfum okkur,“ segir Jónatan. Það sé því gott að fá nú Evrópuverkefni þar sem Valur mætir Zrinjski Mostar í kvöld að Hlíðarenda áður en þeir halda utan í útileikinn í næstu viku. „Ég held það klárlega. Burt séð frá því hvar við erum í deildinni þá er alltaf gaman að spila þessa Evrópuleiki. Svo förum við saman út í næstu viku sem þéttir alltaf hópinn. Við fáum viku á milli sem er mjög gott. Ég held það sé engin spurning að það sé gott að fá smá breik frá deildinni og einblína á þetta,“ segir Jónatan. Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að neðan. Klippa: Kominn á fullt en finnur enn til Evrópuleikir dagsins: 16:30 RFS - Vestri (Sýn Sport Ísland 2) 19:00 Stjarnan - Ilves (Sýn Sport Ísland 2) 19:15 Valur - Zrinjski Mostar (Sýn Sport Ísland)
Valur Sambandsdeild Evrópu Besta deild karla Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir KR - Breiðablik | Slær Aron markametið? ÍA - Keflavík | Geta náð besta árangri í mörg ár FH - Þór | Ævintýri Þórsara fullkomnað? KA - ÍBV | Taka gestirnir KA-menn með sér niður? Stjarnan - Valur | Kveðjustund í Garðabæ Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Sjá meira