„Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. júlí 2026 14:18 Ari Leifsson, leikmaður Stjörnunnar. Vísir „Það er rosalega gott að vera kominn hingað og vel tekið á móti manni,“ segir Ari Leifsson, nýjasti leikmaður Stjörnunnar. Hann verður með liðinu gegn Ilves í forkeppni Sambandsdeildarinnar á morgun.
Fyrsti leikur Ara var hins vegar gegn KR um helgina sem Stjarnan tapaði 5-0. Ari kom inn af bekknum í leiknum og hafði aðeins náð einni æfingu fyrir leik. Eins góðar móttökur og hann fékk í Garðabæ voru þær ekki eins hlýlegar hjá þeim svarthvítu í Vesturbæ. „Það var ekki beint gaman að byrja á þessu en svona er þetta. KR-ingarnir eru með flott lið á góðum stað og við vorum ekki á okkar besta degi. Þeir refsuðu okkur.“ Ari kemur því inn í lið sem er undir töluverðu álagi, og spilar tvo til þrjá leiki í viku. „Það er í rauninni bara geggjað. Maður vill þetta frekar en eitthvað langt undirbúningstímabil, þó það sé kannski skynsamlegra. Þetta er töluvert skemmtilegra, maður er að kynnast öllum og koma sér í gírinn,“ segir Ari. Sex ár sem liðu eins og sex dagar Ari snýr heim til Íslands til að semja við Stjörnuna. Hann hafði verið í atvinnumennsku frá árinu 2020, fyrst hjá Strömgodset í Noregi og svo Kolding í Danmörku. Hann segir tímann þar ytra hafa liðið hratt. Klippa: Hætti við að fara í Val og sáttur í Garðabænum „Hann var mjög fljótur að líða, mér líður nánast eins og þetta hafi varla gerst. Þetta er búið að gerast mjög hratt. Hann var mjög sveiflukenndur. Ég var búinn að æfa með liðinu í viku og þá kom Covid. Þá tóku við skrýtnir tímar eins og allir þekkja en þegar það var komið í eðlilegan farveg þá gat maður farið að njóta þess að búa úti. Þetta var smá einangrun eins og allsstaðar. En eftir það var þetta ótrúlega gaman,“ „Það var allur gangurinn á þessu. Maður glímdi við mikil meiðsli í fyrra sem tók sinn toll, þegar maður getur ekki spilað er það erfitt. En það var hápunktur í Noregi, góðir sigrar þar og mikill uppgangur,“ segir Ari um há- og lágpunkta á þessum sex árum. 16 mánaða dóttir breytti stöðunni Stærsti hápunkturinn var þó líklega fæðing dóttur hans á síðasta ári. Þar varð ákveðinn vendipunktur sem varð til þess að íhuga þyrfti hvort halda ætti áfram úti eða að koma heim. Það hefur legið fyrir um nokkurra mánaða skeið að leiðin lægi heim þegar samningur hans í Danmörku rann út nú í sumar. „Í byrjun árs tökum við stöðuna og sjáum hvar landið liggur. Við eignuðumst dóttur í fyrra, hún er 16 mánaða, svo forgangsatriðin breyttust. Við skoðuðum bæði að vera áfram úti og að koma heim. Þetta var í raun það sem okkur leyst best á,“ segir Ari. Hætti við að fara í Val Hann var mikið orðaður við Val. Ari staðfestir að hann hafi náð samkomulagi við Valsmenn en aðstæður hafi breyst þegar Hermanni Hreiðarssyni, sem stýrði Ara hjá Fylki á sínum tíma, var sagt upp störfum fyrir nokkrum vikum síðan. Og varstu sem sagt á leið í Val þangað til fyrir korteri síðan? „Já, ég held að það sé ekkert leyndarmál. Við vorum með samkomulag en svo breyttust aðstæður og forsendur. Við þurftum að ræða saman eftir það og svo fór sem fór. En ég er mjög sáttur við það að vera hér í dag,“ segir Ari. Var það brotthvarf Hermanns sem gerði að verkum að það breyttist? „Já, þetta er í raun á báða bóga. Það urðu breyttar forsendur og öðruvísi aðstæður. Þetta var kannski ekki alveg besta umhverfið eins og staðan var þarna. En það voru margir aðrir þættir heldur en aðeins maður sjálfur sem höfðu áhrif á þetta,“ segir Ari. Chris Brazell tók við af Hermanni út leiktíðina en svo tekur Halldór Árnason við Val að leiktíðinni lokinni. Gerðist hratt í Garðabænum Aðspurður hvort Stjarnan hafi þá alltaf verið kostur númer tvö segir Ari svo ekki vera, enda hafi aðeins einn kostur verið í stöðunni þar sem hann var búinn að semja munnlega við Valsmenn. Það þurfti því að endurmeta stöðuna þegar ákveðið var að hætta við skiptin á Hlíðarenda. „Reyndar ekki. Þegar hitt kemur upp þá þarf að skoða stöðuna. Hitt var komið á hreint en svo breyttist það. Ég ræddi við fullt af félögum hérna heima og gaman að sjá að flest öll lið hafa bætt umhverfið og stigið upp, sem er bara flott að sjá,“ „En svo kom Stjarnan upp og það gekk mjög hratt allt saman. Það var eiginlega bara á einum degi og svo var maður kominn í hóp, nánast,“ segir Ari. Viðtalið má sjá í heild í spilaranum. Ari verður hluti af liði Stjörnunnar sem mætir Ilves frá Finnlandi á Samsung-vellinum í Sambandsdeild Evrópu á morgun. Valur og Vestri eiga einnig leiki á morgun og allir þrír verða í beinni hjá Sýn Sport Ísland. Evrópuleikir á morgun: 16:30 RFS - Vestri (Sýn Sport Ísland 2) 19:00 Stjarnan - Ilves (Sýn Sport Ísland 2) 19:15 Valur - Zrinjski Mostar (Sýn Sport Ísland)
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Leik lokið: KR-Breiðablik 8-3 | Aron bætti markametið Íslenski boltinn Leik lokið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Enski boltinn Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Leik lokið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Leik lokið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Leik lokið: KR-Breiðablik 8-3 | Aron bætti markametið Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Víkingur - Fram | Lokaleikur tímabilsins Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn