Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Jón Þór Stefánsson skrifar 22. júlí 2026 12:08 Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í máli Skúla Tómasar í gær. Í ákvörðun Landlæknis um að svipta Skúla Tómas Gunnlaugsson starfsleyfi vegna alvarlegs brots í starfi fólst refsing að mati Héraðsdóms Reykjaness. Ekki má refsa mönnum tvisvar fyrir sama brot, og því var manndrápsákæru á hendur Skúla Tómasi vísað frá dómi.
Greint var frá niðurstöðu héraðsdóms um frávísunina í gær, en úrskurður málsins hefur nú verið birtur á vef dómstólanna. Málið varðar atvik sem áttu sér stað þann frá ágústmánuði 2019 til októbermánaðar sama árs. Skúli var ákærður fyrir að setja sjúkling sinn, Dönu Jóhannsdóttur, í lífslokameðferð þrátt fyrir að hún væri ekki með lífsógnandi sjúkdóm. Hann hafi gefið henni slævandi lyf og hafi sú meðferð leitt til þess að Dana lést þann 19. október 2019. Í janúar 2021 var Skúli Tómas sviptur starfsleyfi sem læknir að undangenginni rannsókn embættis Landlæknis á starfsháttum hans, sem varðaði meðal annars umrætt andlát. Skúli Tómas þótti hafa brotið „alvarlega gegn starfsskyldum sínum sem læknir, sýnt alvarlegt hirðuleysi og skort á faglegri hæfni sem ógnað hafi öryggi sjúklinga og haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér.“ Hann var svo ákærður fyrir manndráp fyrr á þessu ári. Það mál var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness, sem kvað upp umræddan úrskurð í gær. Skúli Tómas krafðist þess að málinu yrði vísað frá, með vísan til mannréttindasáttmála Evrópu, vegna rétts fólks til að vera ekki saksótt eða refsað tvívegis fyrir sama brot. Mannréttindadómstóll Evrópu hafi túlkað umrætt ákvæði sáttmálans með þeim hætti að málsmeðferð fyrir stjórnvöldum og ákvörðun viðurlaga á stjórnsýslustigi geti talist sem refsing. Til þess þarf endanleg ákvörðun um viðurlög að liggja fyrir. Málið varðaði því hvort að starfsleyfissviptingin gæti talist sem refsing. Í dómnum segir að slík ákvörðun Landlæknis gerði það almennt ekki, heldur væri fyrst og fremst að ræða úrræði í þágu almannahagsmuna. Það er, að koma í veg fyrir að „heilbrigðisstarfsmaður hafi starfsleyfi ef hann er talinn ófær um að gegna starfi sínu svo forsvaranlegt sé.“ Þó var það mat dómsins að í ákveðnum tilfellum gæti ákvörðun landlæknis talist sem refsing. Það væri þegar heilbrigðisstarfsmaður væri sviptur leyfinu vegna alvarlegs brots á starfsskyldum sem gæti jafnframt falið í sér refsiverða háttsemi. Það hafi beinlínis verið ástæðan í máli Skúla Tómasar. Því komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að honum hafði þegar verið refsað í málinu. Túlkaði héraðsdómur ákvörðun Landlæknis sem sakfellingu í málinu. Og að sú ákvörðun hafi verið endanleg. Þar að auki væri um refsingu í sama máli að ræða. Því hefði endurtekin málsmeðferð brotið gegn réttindum Skúla Tómasar. Þess vegna var málinu vísað frá dómi. Þá þarf ríkissjóður að greiða Almari Möller, lögmanni Skúla Tómasar, um 11,5 milljónir króna í málsvarnarlaun.
Læknamistök á HSS Dómsmál Embætti landlæknis Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira