Innlent

Fjár­kúgun, nýjasti ráð­herrann og loks sól í Reykja­vík

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan 12:00.
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan 12:00.

Lögmaður manns sem missti aleigu sína til óprúttinna aðila á rúmu ári segir lögregluna hafa brugðist við rannsókn málins. Hann lýsir seinagangi og viðbragðsleysi í upphafi málsins og telur að lögreglan beri því mögulega bótaábyrgð.

Vegagerðin varar við bikblæðingum á Austur- og Suðausturlandi og eru ökumenn beðnir um að aka með gát.  Við kynnum okkur málið en ekki er útlit fyrir að ástandið lagist í bráð.

Bretar fengu í morgun nýjan forsætisráðherra, þann sjöunda á síðastliðnu tíu árum. Samúel Karl Ólason fréttamaður fer yfir stöðuna í breskri pólitík í beinni.

Sólþyrstir höfuðborgarbúar mega hlakka hóflega til helgarinnar þar sem rofað gæti til. Allt um þessi gleðitíðindi í hádegisfréttum.

Í Sportpakkanum rýnum við að sjálfsögðu í úrslitaleik HM í gærkvöldi þar sem Spánverjar stóðu uppi sem sigurvegarar.

Þetta og margt fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12:00.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 20. ágúst 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×