Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Sigurgeir Þorkelsson skrifar 19. júlí 2026 20:25 Stuðningur kjósenda Demókrataflokksins við málstað Ísraelsríkis hefur hrapað síðustu ár. Samsett/Getty Zohran Mamdani borgarstjóri skoðar ásamt lögfræðingum New York-borgar hvort mögulegt sé að handtaka Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann sækir Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september.
Mamdani hafði í kosningabaráttu sinni sagst munu gera svo. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn (ICC), sem oft er kenndur við aðsetur sitt í hollensku borginni Haag, hefur gefið út handtökuskipun á Netanjahú í tengslum við rannsókn á mögulegum glæpum gegn mannkyni af hálfu Ísraelshers á Gasa. „Ég trúi því að Netanjahú forsætisráðherra eigi heima í Haag,“ sagði Mamdani í viðtali við The New York Times. „Hann er stríðsglæpamaður sem hefur verið ákærður af Alþjóðasakamáladómstólnum,“ fullyrti Mamdani og bætti við að hann deildi þessari skoðun með fjölda fólks sem hefði fylgst með gjörðum Netanjahú síðustu ár. „Við munum framkvæma í takt við það sem lögin leyfa mér að gera í New York-borg, en við munum ekki fara út í að skrifa okkar eigin lög,“ sagði Mamdani, sem á í svokölluðu „virku samtali“ við lögfræðideild borgarinnar. Netanjahú brást við orðum Mamdani í útvarpsviðtali þar sem hann lýsti því að hann teldi Mamdani hatast út í Bandaríkin á laun. Sendiherra Ísraels við Sameinuðu þjóðirnar hefur lýst því yfir að yfirlýsingar borgarstjórans muni ekki hafa áhrif á ferðaáætlanir forsætisráðherrans. Stuðningur við Ísraelsríki fer þverrandi meðal demókrata Mamdani hefur frá upphafi ferils síns verið stuðningsmaður málstaðar palestínsku þjóðarinnar en slíkt hefur í gegnum tíðina verið sjalfgæft meðal nafntogaðra bandarískra stjórnmálamanna. Breytingar virðast þó vera í loftinu en samkvæmt nýlegri könnun eru nú þrír fjórðu hlutar kjósenda Demókrata andsnúnir því að Ísraelsríki sé veitt fjárhagsaðstoð. Hlutfallið var 45 prósent fyrir aðeins þremur árum. Nánast helmingur þingmanna demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings kusu, í vikunni sem leið, með tillögu um að hætta hernaðarstuðningi Bandaríkjanna við Ísrael, sem hefði þýtt að stuðningur þeirra við Ísraelsstjórn hefði lækkað um 3,3 milljarða bandaríkjadala. Netanjahú í hóp með Pútín og Duterte Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn tekur til að mynda fyrir mál er varða þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi. Meðal áberandi mála síðustu ár eru handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín Rússlandsforseta vegna Úkraínustríðsins og Rodrigo Duterte, fyrrum forseta Filippseyja. Duterte var handtekinn í mars í fyrra og bíður réttarhalda í Haag. Hann er ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni vegna hins blóðuga stríðs gegn fíkniefnum í valdatíð hans þar sem þúsundir manna voru teknar af lífi á götum úti, án dóms og laga, vegna meintra tengsla við heim fíkniefna.
Bandaríkin Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Filippseyjar Vladimír Pútín Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira