Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Freyja Þórisdóttir skrifar 18. júlí 2026 17:06 Útsýni yfir Trinity-þjóðgarðinn í Norður-Kaliforníu. Getty Tveimur starfsmönnum bandarísku skógræktarinnar (á ensku U.S. Forest Service) hefur verið sleppt eftir að þeim var haldið í gíslingu og þeim hótað ofbeldi. Var þeim haldið föngnum í hjólhýsi í skógi í Kaliforníu-fylki í um fimmtán klukkustundir. Hinir grunuðu eru feðgar en talið er líklegt að þeir hafi valið starfsmennina vegna þess að þeir eru ríkisstarfsmenn.
Var yfirvöldum á svæðinu gert viðvart um að starfmennirnir tveir hefðu sést bundnir með reipum í hjólhýsi og að tveir menn gengju um á svæðinu vopnaðir riffli um klukkan 11:00 að staðartíma fimmtudaginn síðasta, þann 16. júlí. Frá þessu greinir bandaríska fréttastöðin CNN en atvikið átti sér stað í Shasta-Trinity-þjóðgarðinum sem er sá stærsti í fylkinu. Hinir grunuðu eru feðgar Tveir tugir lögreglumanna voru sendir á vettvang en þar á meðal voru leyniskyttur, sérsveitarmenn, sprengjusérfræðingar og fleiri. Drónar voru nýttir til að ná betra sjónarhorni á hjólhýsið en það stóð á þéttvöxnu skógarsvæði nálægt Gumboot-vatni. Lögreglumenn hófu samningaviðræður við hina grunuðu, Joseph Charles Henrichsen, 49 ára, og son hans, Phoenix Henrichsen, 23 ára, um klukkan 16:00 á staðartíma á fimmtudag, er fram kemur í umfjöllun CNN. Þar segir einnig frá því að annar hinna grunuðu hafi sagt í símtali við lögreglumann að hann hefði „skotfæri tilbúin“ til að nota gegn hverjum þeim sem skipti sér af gíslatökunni. Lögreglan segir að hinir grunuðu hafi verið með AR-15 riffil, hnífa og handsprengjur í hjólhýsinu. Gáfust loksins upp Þá slepptu feðgarnir starfsmönnunum tveimur að lokum um klukkan hálf tvö aðfaranótt föstudags, á staðartíma, og voru teknir höndum eftir að hafa gefist upp innan við klukkustund síðar. Í umfjölluninni segir að þeir eigi yfir höfði sér ákærur fyrir mannrán á ríkisstarfsmönnum og þar með lífstíðarfangelsi og tvö hundruð og fimmtíu þúsund dollara sekt, ríflega þrjátíu milljónir íslenskra króna, verði þeir sakfelldir. Talið er að hinir grunuðu tveir hafi beint spjótum sínum að starfsmönnum skógræktarinnar vegna þess að þeir eru ríkisstarfsmenn en samkvæmt CNN stendur rannsókn málsins enn yfir.
Bandaríkin Þjóðgarðar Skógrækt og landgræðsla Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira