Innlent

Ís­lendingur reyndi að smygla milljónum í reiðu­fé frá Græn­landi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Héraðsdómurinn í Sermersooq í Nuuk þar sem mennirnir voru dæmdir.
Héraðsdómurinn í Sermersooq í Nuuk þar sem mennirnir voru dæmdir. Kenny McFly

Íslendingur á þrítugsaldri var í vetur dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar á Grænlandi auk fimm ára endurkomubanns fyrir að hafa reynt að smygla tæplega tólf milljónum króna í reiðufé út úr landinu í því skyni að þvætta þær.

Dómurinn yfir manninum sem er 29 ára íslenskur ríkisborgari féll í nóvember. Hann játaði skýlaust brot sín en upp komst um smygltilraunina við öryggisleit á flugvellinum í Nuuk. Brotið sem um ræðir var framið 22. september á síðasta ári.

Hann var dæmdur til fimm mánaðar vistunar í grænlensku fangelsisúrræði. Peningarnir voru gerðir upptækir, manninum vísað úr landi og lagt á hann fimm ára endurkomubann. Í umfjöllun grænlenska miðilsins Sermitsiaq kemur fram að maðurinn sé af norðurafrísku bergi brotinn.

Hann er ekki sagður hafa neina persónulega tengingu við Grænland en hann á fjölskyldu í Reykjavík.

Samverkamaður hans, 21 árs Portúgali, var í síðustu viku einnig dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar, brottvísunar og fimm ára endurkomubanns fyrir sama brot.

Saksóknarar fóru fram á að hann yrði einnig dæmdur fyrir smygl á hálfu kílói af kókaíni og tíu kílóum af hassi til Grænlands á árunum 2024 og 2025. Þetta féllst héraðsdómurinn í Sermersooq ekki á þar sem umrædd fíkniefni fundust aldrei. Saksóknari hélt því fram að skilaboð sem fundust á farsíma mannsins sem sönnuðu sekt hans en það tók dómurinn ekki undir.

Þriðji maðurinn hefur verið ákærður fyrir sama brot en mál hans hefur ekki farið fyrir dómara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×